Saka lögreglu í Mósambík um tilefnislaus dráp Atli Steinn Guðmundsson skrifar 16. nóvember 2009 07:13 Óeirðalögregla í Mósambík að störfum eftir landsleik við Kenýa í Mapútó í september.
Mannréttindasamtök saka lögregluna í Mósambík um að drepa fólk af minnsta tilefni. Lögregla í Suðaustur-Afríkuríkinu Mósambík er lítt við alþýðuskap að sögn mannréttindasamtakanna Amnesty International og segja samtökin lögreglu þar hafa orðið 46 manns að bana síðan árið 2006, oft af litlu sem engu tilefni. Fréttastofan greindi frá því í síðustu viku að lögregla í bænum Klipfontein View í Suður-Afríku hefði skotið þriggja ára gamlan dreng til bana þar sem hann átti að hafa rekið einhvers konar pípu út um bílglugga sem líktist byssuhlaupi. Lögregla þar í landi hefur þá stefnu að skjóta fyrst og spyrja svo og hafa 912 borgarar fallið í valinn af hennar völdum síðustu ár. Amnesty International segja frá máli í Mósambík þar sem danskennarinn Augusto Cuivias var staddur á heimili sínu ásamt syni sínum, lífverði og sambýliskonu. Hann heyrði grunsamleg hljóð og hringdi í lögregluna sem kvaðst ekki hafa neinn bíl til umráða og því ekki komast á vettvang. Cuivias hringdi þá í fyrrverandi eiginkonu sína sem fór akandi á lögreglustöðina og náði í tvo lögreglumenn. Þegar þeir komu á heimili Cuivias hófu þeir skothríð formálalaust með þeim afleiðingum að Cuivias og lífvörðurinn létust báðir. Sambýliskonan slapp en missti fóstur. Amnesty International segja enga rannsókn hafa farið fram og enginn verið dæmdur í fangelsi. Þetta sé dæmigert fyrir framgöngu lögreglunnar í Mósambík sem hafi sagt samtökunum að enga rannsókn þyrfti þar sem drápin hafi verið fullkomlega lögleg.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira