Seyðfirðingar í Sony-auglýsingu 4. apríl 2009 06:00 Möstur með hátölurum hafa verið reist úti um allan Seyðisfjörð, þar á meðal í hólmanum í miðju Lóninu. „
Okkur hefur verið vel tekið af bæjarbúum og það eru allir hérna boðnir og búnir að gera allt fyrir okkur þótt við séum í raun að taka bæinn yfir,“ segir Hjörtur Grétarsson hjá True North um alþjóðlega Sony-auglýsingu sem fyrirtækið tekur nú upp á Seyðisfirði. Alls verða gerðar fimm auglýsingar fyrir hátalara og heyrnartól Sony sem verða sýndar úti um allan heim. „Við byrjuðum að taka klukkan 11 í gær og verðum hérna í fjóra daga. Við höfum reist möstur með hátölurum sem eru yfir 100 talsins og fest gríðarlega stóra hátalara á ljósastaura. Í fyrrakvöld reistum við eitt mastur í hólmanum í miðju Lóninu, svo við þurfum að gæta flóðs og fjöru, en veðrið ætlar að leika við okkur í tökunum,“ útskýrir Hjörtur, en segir megnið af hátölurunum einungis vera fyrir leikmynd en ekki hljóð. „Ástæðan fyrir því að við erum að taka þetta hér á Seyðisfirði er að auglýsingin á að gerast í afskekktum bæ þar sem allir vísindamenn Sony búa og eru að prófa alls konar heyrnartól og hátalara sem þeir framleiða. Það er í raun bara verið að búa til blæ venjulegs lítils samfélags svo þetta á að vera eins eðlilegt og heimilislegt og það getur verið. Um 130 manns koma að tökunum, en þar af eru 25 til 30 leikarar. Þeir eru nær allir héðan úr Seyðisfirði og nokkrir frá Egilsstöðum, svo þetta er allt úr héraði,“ bætir hann við. Auglýsingarnar fara í loftið í lok maí og verða sýndar út um allan heim. Sú lengsta er þrjár mínútur og verður mest spiluð á netinu svo Seyðfirðingar eru að verða heimsfrægir.“ - ag
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira