Keðjan er lifandi 3. apríl 2009 06:15 Stelpurnar úr Listdansskólanum læfa verk sitt og Láru fyrir förina til Finnlands í sumar.
Neðan úr kössunum standa tveir grannir fætur og höfuð. Lára Stefánsdóttir, dansari og danshöfundur, er að vinna að verki ásamt ungum dönsurum sem lítur ekki dagsins ljós fyrr en í sumar. Þá verður verkið lagt saman við verk frá fimm öðrum Norðurlöndum á fertugustu listdanshátíðinni í Kupio, sem er virtasta og stærsta danshátíð á Norðurlöndum. Hlutur Láru og krakkanna er partur af svokölluðu Keðju-verkefni. Keðja er verkefni sem ætlað er að styrkja stöðu dansins gagnvart öðrum listgreinum og þáttum menningarlífsins í Norður-Evrópu (Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Litháen). Að baki þessum markmiðum liggur sú von að í gegnum Keðju verði til sterkt tengslanet sem verði gert kleift að vaxa og dafna og ná til fleiri landa í Norður-Evrópu. Verkefnið Keðja hófst í nóvember 2007 og því lýkur í desember 2010. Það nýtur stuðnings Evrópusambandsins og norrænna sjóða og er stærsta verkefni sinnar tegundar í dansheiminum á þessu svæði. Sex stórir viðburðir munu verða haldnir í fimm borgum Norðurlanda auk Vilníus á þrem árum. Hver viðburður hefur sitt eigið tema og í öllum tilvikum er markmiðið að styrkja stöðu dansins gagnvart öðrum listgreinum eða þáttum menningarlífsins í Norður-Evrópu. Til að líta til með Láru kom hingað í vikunni yfirhöfundur verksins, Isto Turpeinen. Hann hefur ferðast á milli Norðurlandanna og unnið með hverjum hópi og endaði hér. Krakkarnir héðan slást í hóp nær fimmtíu ungra dansara í sumar. Dagskráin á hátíðinni er gríðarlega metnaðarfull: þangað koma mörg stór nöfn sem spanna danssöguna síðustu fjörutíu ár. Meðal þeirra má nefna Íslandsvinina Mats Ek sem ól hluta af æsku sinni hér og Jirí Kylián frá Nederlands Dans Theatre. Verkið sem slegið verður saman úr atriðum frá löndunum sex kallast Corridor. Og það er ekki það eina sem dansararnir ungu munu njóta: í tengslum við sýningar Keðjunnar verður málþing þar sem 150 atvinnumenn víða að úr heiminum koma saman og deila ráðum sínum og reynslu í dansmenningu fyrir unga listamenn. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira