Gylfi: Við gerðum mistök 25. mars 2009 10:38 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Forysta Alþýðusamband Íslands gerði mistök sem rýrðu ímynd sambandsins og stöðu sína gagnvart félagsmönnum þegar ASÍ setti ríkisstjórn Geirs H. Haarde ekki stólinn fyrir dyrnar í byrjun desember. Þetta kom fram í setningarræðu Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, þegar aukaársfundur sambandsins hófst í dag. Gylfi sagði að þegar í ljós hafi komið að aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru veikburða og handahófskenndar og þeir sem báru ábyrgð á hruninu voru ekki látnir axla hana hafi ASÍ krafist þess að gerðar yrðu umfangsmiklar breytingar innan ríkisstjórnar, Seðlabanka og Fjármálaeftirlits til þess að freista þess að ríkisstjórnin næði sátt við þjóðina. Engu af þessu hafi verið hrint í framkvæmd og reiðin hafi magnast í samfélaginu. „Eftir á að hyggja viðurkenni ég að við gerðum ákveðin mistök í þessu ferli, sem rýrðu ímynd okkar og stöðu gagnvart félagsmönnum og trúlega hefðum við átt að setja ríkisstjórninni stólinn fyrir dyrnar í byrjun desember í stað þess að bíða fram yfir áramót,“ sagði Gylfi. Biðji þjóðina afsökunar Gylfi sagði að forsenda sáttar almennings og áhrifamanna í viðskipta- og atvinnulífi sé tvíþætt. „Annars vegar að stjórnvöld taki á trúverðugan og réttlátan hátt á þeim sem báru ábyrgð á hruni bankakerfisins en öll aðferðafræði við rannsókn á aðdraganda hrunsins til þessa hefur verið í skötulíki," sagði Gylfi og bætti við að þeir sem beri ábyrgðina verði að biðja þjóðina afsökunar á því að hafa komið henni í þessa stöðu. „Við hljótum að kalla þessa aðila til ábyrgðar og spyrja hvort þeir ætlist virkilega til þess að endurreisn atvinnulífsins eigi sér stað á sama siðspillta grunni og áður?" Gylfi sagði að Alþýðusambandið væri ekki til viðræðu um slíkt og ætlast væri til þess að endurreisnin verði byggð á traustum siðferðislegum og samfélagslegum gildum.Norræn samfélög fyrirmyndin Gylfi sagði reynsluna sýna að norræn samfélög sem byggi á velferðarhugsjón verkalýðshreyfingarinnar hafi skapað íbúum sínum mesta almenna velferð og lífsgæði meðal þjóða heims. „Það er engin vafi að norrænu velferðarsamfélögin eru meðal þeirra samfélaga sem eru best búin undir framtíðina og ég er sannfærður um að þau munu fyrr og betur ráða við afleiðingar þessarar alheimskreppu. Samfélög sem byggja á öflugu og virku velferðarkerfi, góðri menntun fyrir alla, jöfnuði, jafnrétti kynjanna og traustum réttindum launafólks er einmitt sá grunnur sem byggja þarf á til að takast á við þann mikla vanda sem fylgir afleiðingum fjármálakreppunnar."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira