Fimm menn handteknir 22. desember 2009 03:00 Fannst í þremur hlutum í skógi skammt frá heimili eins þjófanna. fréttablaðið/AP
Fimm menn voru handteknir seint á sunnudagskvöld fyrir stuld á járnskiltinu alræmda, sem var yfir hliði útrýmingarbúða nasista í Auschwitz í Póllandi. Pólska lögreglan segir mennina ekki vera nýnasista, heldur virðist sem þeir hafi bara verið á höttunum eftir peningum sem hugsanlega fengjust fyrir skiltið. Skiltinu var stolið aðfaranótt föstudags, en fannst í þremur hlutum í skógi skammt frá heimili eins sakborninganna eftir að meira en hundrað ábendingar höfðu borist til lögreglu. „Þetta eru venjulegir þjófar,“ segir Marek Wozniczka, einn þeirra lögreglumanna sem rannsaka stuldinn. Þeir eru á þrítugsaldri, fjórir þeirra atvinnulausir en einn rekur lítið byggingafyrirtæki. Skiltið settu þýskir nasistar upp yfir hlið útrýmingarbúðanna, þar sem meira en milljón manns létu lífið á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Á skiltinu standa þýsku orðin „Arbeit macht frei“, eða „Vinnan veitir frelsi“. Strax á föstudaginn var sett upp nákvæm eftirgerð skiltisins, sem notuð var á meðan gert var við upphaflega skiltið fyrir nokkrum árum. Stolna skiltið verður sett á sinn stað um leið og viðgerð á því lýkur. - gb
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Sjá meira