Freyja Haraldsdóttir fékk styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen 15. janúar 2009 15:47 Freyja Haraldsdóttir.
Freyja Haraldsdóttir hlaut styrk að upphæð 350 þúsund krónur úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra í Höfða í síðustu viku. Það var Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sem afhenti stykinn við hátíðlega athöfn. Til sjóðsins var stofnað af hjónunum Bentu og Valgarði Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Þetta er í tuttugasta og þriðja sinn sem veitt er úr sjóðnum og hafa styrkþegar bæði verið félagasamtök og einstaklingar. Freyja Haraldsdóttir hefur þrátt fyrir fötlun látið drauma sína rætast og um leið opnað augu almennings fyrir því að það felist tækifæri í fötlun. Hún er 22ja ára að aldri og stundar nám í þroskaþjálfafræði við Kennaraháskóla Íslands ásamt því að starfa við fyrirlestra og fræðslu um líf fatlaðs fólks. Í nóvember 2007 gaf hún út bókina Postulín ásamt Ölmu Guðmundsdóttur og fjallar bókin um líf Freyju og viðhorf. Með einstöku hugarfari og hjálp frá fjölskyldu og vinum tekur Freyja virkan þátt í daglegu lífi. Hún hefur heimsótt fyrirtæki, stofnanir og alla framhaldsskóla landsins og haldið fyrirlestra þar sem hún lýsir því hvernig það er að vera fötluð og hvernig samfélagið oft og tíðum bregst við fötluðum einstaklingum. Borgarstjóri sagði við afhendingu styrksins í Höfða að Freyja væri einstaklega vel að styrknum komin. Hún hefði hreyft við fjölda fólks með bókinni Postulíni og sýnt fram á dugnað og þor þrátt fyrir mótbyr. Freyja sagðist afar þakklát, styrkurinn kæmi sér vel og hún myndi nýta hann til þess að halda áfram fræðslufyrirlestrum sínum sem hún segir mikilvægan þátt í að opna augu almennings fyrir málefnum fatlaðra.
Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Sjá meira