ESB setur Króötum stólinn fyrir dyrnar 24. júní 2009 12:11
Evrópusambandið hefur frestað um óákveðinn tíma aðildarviðræðum við Króatíu vegna landamæradeilu Króata við Slóvena. Það gæti haft áhrif á mögulega aðildarumsókn Íslendinga en stækkunarstjóri Evrópusambandsins hefur sagt að Króatar færu næstir inn. Evrópusambandið tilkynnti í morgun að næstu viðræðulotu fulltrúa sambandsins við Króata sem átti að hefjast á föstudaginn hefði verið aflýst. Það væri gert vegna þess að ekki hafi tekist að leysa landamæradeilu Króata við Slóvena en Slóvenía er aðili að ESB. Þetta mun mikið áfall fyrir Króata en ríkisstjórn Króatíu batt vonir við að hægt yrði að ljúka aðildarviðræðum fyrir næstu áramót og þannig myndi landið ganga í sambandið á næsta ári eða í síðasta lagi 2011. Slóvenar og Króatar hafa átt í deilum um landamæri sín og sameiginleg hafsvæði síðan ríkin tvö lýstu yfir sjálfstæði frá fyrrum Júgóslavíu snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Í tilkynningu frá Evrópusambandinu, sem Tékkar eru nú í forsvari fyrir, segir að ákveðið hafi verið að hætta við næstu viðræðulotu þar sem ekki hafi tekist að leysa þær deilur sem nú beri hæst milli landanna. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og forysta þess hafi lagt mikið á sig til a finna lausn á málinu en það hafi ekki tekist. Svíar taka við forystu í Evrópusambandinu í byrjun júlí og ætla þá að reyna að leysa deiluna. Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, hefur sagt að Króötum yrði veitt aðild að ESB á undan Íslendingum ef Ísland myndi sækja um aðild. Rehn sagði í morgun að ákvörðun sambandsins gagnvart Króatíu væri ekki endanleg. Enn væri mögulegt að Króatar kæmust í síðasta stig í aðildarviðræðum sínum fyrir áramót en hægt yrði að hefja aftur viðræður milli Króata og Slóvena auk þess sem Króatar tryggðu nauðsynlegar umbætur á innviðum í landinu sem auðveldaði aðild þeirra að sambandinu.
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Sjá meira