Virkjanir í Þjórsá ein af forsendum stöðugleikasáttmálans Heimir Már Pétursson skrifar 12. júlí 2009 18:34
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að virkja verði í neðri hluta Þjórsár ef þær framkvæmdir sem gefin eru fyrirheit um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda eigi að verða að veruleika. Í sáttmálanum segi að öllum hindrunum í vegi framkvæmda eigi að ryðja burt fyrir 1. nóvember. Skrifað var undir víðtækan stöðugleikasáttmála ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins hinn 26. júní síðast liðinn en þar er m.a. gert ráð fyrir umfangsmiklum framkvæmdum til að slá á atvinnuleysi og rétta við atvinnulífið í landinu. „Það er alveg ljóst að virkjanirnar í neðri Þjórsá hljóta að koma inn í þessa mynd ef menn ætla sér að framkvæma allt sem er á teikniborðinu í atvinnulífinu, þ.e.a.s. Helguvík og framleiðsluaukninguna í Straumsvík ásamt ýmsum öðrum verkefnum sem eru í gangi," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Þá verði að fara í neðri Þjórsá. Ríkið á nú meirihluta vatnsréttinda í Þjórsá en þar á þó enn eftir að semja við nokkra landeigendur og síðan eru virkjanirnar sem slíkar umdeildar í þjóðfélaginu og innan beggja stjórnarflokkanna. Vilhjálmur segir málið snúast um vilja og ákvarðanatöku, en málið hafi verið rætt meðal helstu hagsmunaaðila. „Við erum með í smíðum ákveðið minnisblað þar sem þetta kemur allt fram og við munum leggja það fyrir forsætisráðherra til að sjá hvort ekki er hægt að koma málunum fram," segir Vilhjálmur. Í stöðugleikasáttmálanum komi fram að það eigi að ryðja öllum hindrunum úr vegi þessara framkvæmda fyrir 1. nóvember. Þá þurfi að liggja fyrir áætlun um hvernig staðið verði að virkjanaframkvæmdum þannig að orka sé til staðar þegar hennar verði þörf. Vilhjálmur segir að verið sé að vinna að rammaáætlun um virkjanir. Hún hafi átt að liggja fyrir seinna en markmiðið um framkvæmdirnar í stöðugleikasáttmálanum. Hann voni hins vegar að hægt sé að flýta gerð rammaáætlunarinnar, eða að minnsta kosti taka eitthvað af virkjanaframkvæmdunum út fyrir sviga þannig að þær liggi fyrir fyrr en aðrar, þannig að hægt sé að taka þessar ákvarðanir og ryðja öllum hindrunum úr vegi.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Eldur í Árbænum Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Sjö prósent 9 og 10 ára drengja á bið eftir greiningu Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Sjá meira