Innlent

Fékk bílskúrshurð í höfuðið

Karlmaður slasaðist alvarlega þegar hann fékk bílskúrshurð í höfuðið í morgun í Kópavogi.

Maðurinn, sem er hugsanlega höfuðkúpubrotinn, var færður umsvifalaust á spítala til aðhlynningar. Maðurinn gekkst undir aðgerð vegna meina sinna.

Maðurinn var að vinnu við Vesturvör í Kópavogi þegar slysið átti sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×