William Shatner rekur Bandaríkjamenn í frí Atli Steinn Guðmundsson skrifar 26. janúar 2009 08:07 Shatner vígalegur í hlutverki samningamannsins. MYND/Priceline
Gamla Star Trek-brýnið William Shatner berst nú af alefli fyrir lífi bandarískrar ferðaþjónustu sem auglýsingapersóna Priceline-ferðaskrifstofunnar. Það er engin lognmolla í kringum leikarann gamla sem nú vantar ekki nema þrjú ár í áttrætt. William Shatner þekkja lífsreyndari sjónvarpsnotendur betur sem kaftein James T. Kirk á geimfleyinu Enterprise sem ásamt harðskeyttri áhöfn sinni gerði Klingónum og fleiri útgeimaþjóðflokkum lífið leitt. Nú þjónar Shatner bandarísku ferðaskrifstofunni Priceline.com og glímir við þá ofurþraut að koma Bandaríkjamönnum í frí. Þetta er hægar sagt en gert þegar þjóðin horfir framan í eina skæðustu efnahagsgrýlu sem sést hefur til nánast síðan Shatner sjálfur kom í heiminn. Á sjónvarpsskjá 21. aldarinnar kallast hann Priceline-samningamaðurinn og er söguþráður auglýsinganna á þann veg að Shatner ryðst grár fyrir járnum inn á heimili og vinnustaði og hótar öllu illu bóki skelfingu lostin fórnarlömbin ekki þegar í stað ferð í draumafríið á síðu Priceline. Shatner segir að samningamaðurinn sé fæddur af nauðsyn og nærist á ótta, óttanum við kreppuhjal og svartsýni. Hann segir Bandaríkjamenn eiga það á hættu að draga seglin svo mikið saman að allt hrynji hreinlega til grunna. Þetta gangi auðvitað ekki og því þurfi blankir Bandaríkjamenn að draga úr svartsýninni og skella sér í frí með Priceline til að gera lífið skemmtilegra.
Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið David Hockney er látinn Menning Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Sjá meira