Harry í ástarsorg 26. janúar 2009 02:30 Chelsy og Harry eru hætt saman eftir fimm ára samband.
Á meðan Íslendingar horfðu á eftir Björgvini G. Sigurðssyni úr embætti viðskiptaráðherra þá þurfti Harry Bretaprins að horfast í augu við þá staðreynd að hann væri laus og liðugur. Kærastan hans til fimm ára, Chelsy Davy, sagði honum upp í gegnum síma fyrir nokkrum dögum segir í breska götublaðinu News of the World. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins var Chelsy búin að fá nóg af piparsveinalíferni prinsins en honum hefur þótt æði gaman að skella sér á pöbbinn með vinum sínum og djamma fram á nótt. Þau ætla þó að vera áfram vinir. Undanfarnir dagar hafa því reynst Harry erfiðir því hann var áminntur af breska hernum fyrir að kalla félaga sinn „paki" sem er niðrandi heiti yfir innflytjendur í Bretlandi. Og í kjölfarið var það rifjað upp þegar Harry klæddist nasistabúningi á grímuballi fyrir nokkrum árum. Harry mun hafa sagt föður sínum, Karli, frá sambandsslitunum fyrir nokkrum dögum en hann ætti að hafa reynsluna af því að kljást við erfið ástamál. Elísabet drottning mun einnig hafa haft veður af þessari ástarsorg og samkvæmt News of the World er henni illa við óvæntar uppákomur. Samband Harrys og Chelsy hefur ekki alltaf verið dans á rósum einkum vegna þess að Harry kann því vel að daðra við ókunnugar konur. Þá leika framavonir Chelsy sem lögfræðingur einnig stórt hlutverk en það að vera gift inn í konungsfjölskyldu getur reynst þrándur í götu þeirra sem þrá slíka hluti.
Mest lesið „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Lífið Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn Lífið Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Lífið Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Lífið Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugs Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Lífið Fleiri fréttir Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugs Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Sjá meira