Lífið

Þórir framleiðir mynd um Charles Bronson

Eins og sjá má lagði leikarinn Tom Hardy töluvert á sig til að ná líkamsburðum og geðveikisglampa Charles Bronson.
Eins og sjá má lagði leikarinn Tom Hardy töluvert á sig til að ná líkamsburðum og geðveikisglampa Charles Bronson.

Kvikmyndin Bronson í leikstjórn hins danska Nicholas Winding Refn hefur vakið mikla athygli á Sundance-kvikmyndahátíðinni sem nú er haldin í Utah-ríki í Bandaríkjunum. Þórir Snær Sigurjónsson hjá kvikmyndafyrirtækinu ZikZak, er einn framleiðanda myndarinnar en gagnrýnendur hafa hrósað henni hástert og kvikmyndarýnir karlablaðsins FHM telur hana vera Clockwork Orange 21. aldarinnar. „Jú, hún hefur verið að fá prýðilega dóma," segir Þórir hógvær í samtali við Fréttablaðið en hann var staddur á Sundance til að fylgja eftir sýningum á stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, 2Birds sem aldrei þessu vant fór heim verðlaunalaus.

Bronsonmyndin er hins vegar lauslega byggð á ævi einhvers þekktasta fanga Bretlands, Michaels Gordons Peterson. Hann breytti síðar nafni sínu í Charles Bronson. Michael þessi er sagður vera hættulegasti fangi Bretlands og þrátt fyrir að hafa „aðeins" framið þrjú afbrot þá hefur honum tekist að halda sér á bak við lás og slá í 34 ár fyrir uppátæki sín innan fangelsismúranna. Þar af er þrjátíu ár í einangrun.

Aðalleikari myndarinnar, Tom Hardy, hefur fengið frábæra dóma fyrir frammistöðu sína. Þórir upplýsir að Hardy þessi hafi lagt mikið á sig og hann hafi átt mörg samtöl við umræddan Bronson. „Hann var dæmdur fyrir smáafbrot á sínum tíma og ákvað upp frá því að verða frægasti fangi Bretlandi. Honum tókst það," segir Þórir. Kvikmyndabiblían Varitey gaf kvikmyndinni prýðilega dóma á vefsíðu sinni og vefsíðan Indiwire, sem er ein virtasta sjálfstæða kvikmyndasíða í heimi, hrósar henni í hástert.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.