Skrýtið að semja um launahækkanir 26. júní 2009 06:00 Ari Skúlason
Þórarinn V. Þórarinsson, sem var framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands þegar þjóðarsáttin var gerð, segir skrýtið að samið sé um launahækkanir í stöðugleikasáttmálanum. „Ég geng þó út frá því að það sé það gjald sem greiða þurfti til að tryggja frið á vinnumarkaði út 2010," segir Þórarinn. Mikilvægt er að samstaða hafi náðst á takmörkun skattahækkana ríkisstjórnarinnar, að mati Þórarins. Skattahækkanir verða 45 prósent af aðgerðunum. Þrýstingur var að hafa hlutfallið hærra. Ákveðið öryggi er fólgið í því að kominn sé stuðningur við þær aðgerðir sem styðja þarf við, að sögn Þórarins. Við afnám gjaldeyrishafta skiptir þó máli að búið verði að grípa til ráðstafana sem styðja við gengi krónunnar. Spurður um hvort einhverjar hættur séu í sáttmálanum segir Þórarinn Íslendinga eiga mjög mikið undir því að staðinn sé vörður um lífeyrissjóðskerfið. „Það verður mikið verkefni að verja þá stöðu og verja framtíðina í kerfinu," segir Þórarinn. Ari Skúlason, sem var forstöðumaður hagdeildar Alþýðusambandsins á tímum þjóðarsáttar, segir sáttmálann vonandi vera fyrsta jákvæða skrefið af mörgum. Hann segir hættumerki ekki áberandi í sáttmálanum. Aðallega sé verið að tryggja frið á vinnumarkaði og annað hangi á því. „Það er svo hlutverk stjórnvalda að halda utan um sáttmálann og efna hann," segir Ari.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Sjá meira