Innlent

Kolmunnaskip halda heim á leið

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Íslensku kolmunnaskipin tíu, sem verið hafa á kolmunnaveiðum á Rockall-svæðinu vestur af Skotlandi, eru á heimleið og eru djúpt suður af landinu þessa stundina. Eftir þrálát óveður, sem komu í veg fyrir veiðar, skánaði veðrið fyrir nokkrum dögum, en síðan þá hefur enginn kolmunni fundist þannig að skipin eru á heimleið. Fram undan er löng landlega hjá mörgum þeirra þar sem þau hafa ekki að öðrum veiðum að hverfa um þessar mundir. Annars eru fá skip á sjó umhverfis landið vegna óveðurs á miðunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×