Trumbur og gjöll slegin 22. janúar 2009 04:00 Colin Currie og Pedro Carneiro í sveiflu á æfingu í gær. MYND/frettablaðið/stefán
Trommuleikarar og áhugamenn um áslátt verða í kvöld aðnjótandi happafengs. Þá flytja tveir ásláttarmenn af heimsklassa nýtt verk eftir Áskel Másson í liði með Sinfóníunni. Það verða þeir Colin Currie frá Englandi og Pedro Carneiro frá Portúgal sem takast á við Crossings og er það í fyrsta sinn sem þeir koma fram hér á landi í frumflutningnum. Áskell tók að berja bumbur á unga aldri í popphljómsveitum en sneri sér að tónsmíðum eftir skamma hríð og hefur síðan verið afkastamikið tónskáld. Hann hefur aldrei vikið frá áhuga sínum á ásláttarhljóðfærum og meðal annars samið fyrir einn frægasta ásláttarmann heimsins Evylyn Glennie. Áskell hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir tónsmíðar sínar, þeirra á meðal Íslensku tónlistarverðlaunin. Langt er síðan annað eins hefur verið borið inn á svið Háskólabíós af slagverkshljóðfærum sem verður undirlagt af ásláttartækjum af ýmsu tagi. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir tveir meistarar leika saman og verður að telja flutninginn tíðindamikinn viðburð. Colin Currie vakti heimsathygli þegar hann varð fyrsti slagverksleikarinn til að komast í úrslit BBC Young Musician keppninnar fimmtán ára gamall. Hann hefur frumflutt ótal verk með hljómsveitum á borð við Lundúnafílharmóníuna og Philadelphiahljómsveitina í Carnegie Hall. Hann hefur leikið inn á nokkra metsöludiska. Hinn portúgalski Pedro Carneiro er sömuleiðis í algjörum sérflokki. Hann hefur frumflutt yfir áttatíu verk eftir mörg af fremstu tónskáldum heims auk þess sem hann hefur sjálfur samið töluvert af slagverkstónlist. Á efnisskrá tónleikana er einnig Petrúska eftir Igor Stravinskíj sem er eitt hans dáðasta verk, samið fyrir ballett um sirkusbrúðuna sem fellur fyrir ballerínunni. Einnig er á dagskránni Les biches, ballettsvíta eftir Francis Poulenc. Aðalhljómsveitarstjóri sinfóníunnar, Rumon Gamba heldur um sprotann en hann var einmitt tilnefndur til Grammy-verðlaunanna 2008 ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir besta hljómsveitarflutning á geisladiski. Tónleikarnir hefjast í kvöld kl. 19.30 og fyrir þá verður kynning á verkunum á Hótel Sögu kl. 18. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið Fleiri fréttir Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Sjá meira