Lífið

Breytingar hjá Birtíngi - Mannlíf í útgáfuhlé

Sigurjón M. Egilsson ritstjóri Manlífs
Sigurjón M. Egilsson ritstjóri Manlífs

Forsvarsmenn Birtíngs útgáfufélags segjast í ljósi aðstæðna neyðast til þess að gera skipulagsbreytingar á útgáfustarfsemi félagsins. Kostnaður á pappír og öðrum aðföngum er sagður hafa hækkað meira en nokkrun gat órað fyrir auk þess sem sala hefur dregist saman hjá félaginu. Í pósti frá Elínu Ragnarsdóttur, framkvæmdarstjóra félagsins segir að sú blanda sé banvæn ef ekkert sé að gert.

Litið er á breytingarnar sem tímabundnar og beðið er eftir betri tíð. Mannlíf sem verið hefur undir ritstjórn Sigurjóns M. Egilssonar fer í útgáfuhlé og verður endurhannað, en stefnt er að því að koma aftur inn á markað með blaðið í vor.

„Tímaritið er 25 ára á þessu ári og mikil verðmæti eru fólgin í nafni blaðsins sem við viljum ekki að fari forgörðum. Því munum við endurhugsa blaðið og koma fram með nýtt blað með vorinu," segir í pósti frá Elínu sem Vísir hefur undir höndum.

„Golfblaðið fer einnig í útgáfuhlé. Golfblaðið er gefið út í samvinnu við breskt útgáfufélag og á meðan pundið kostar hvítuna úr augunum verður þetta blað að bíða betri tíma. Við vonumst til þess að gefa 3-4 Golfblöð út á árinu en ekkert er þó víst í þeim efnum."

Þá segir að Skakki Turninn og Sagan Öll sem hafa komið út verði sameinuð í eitt blað og ritstjóri þess verði Ragnheiður Gyða Jónsdóttir, en blaðið mun koma út á þriggja vikna fresti framvegis.

„Illugi [Jökulsson]verður áfram í útgáfustjórn þessara tímarita auk þess sem hann vinnur nú sem forleggjari Skugga og bókaútgáfu Birtíngs. Hann mun auk þess vera með fasta þætti í helgarblaði DV sem ég tel að eigi eftir að vekja athygli."

Þá segir að ekki séu fyrirhugaðar breytingar á annarri útgáfu félagsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.