Meirihlutinn heldur - Gunnsteinn hugsanlega bæjarstjóri 22. júní 2009 22:20 Nýr Bæjarstjóri? Gunnsteinn Sigurðsson var samþykktur sem bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. „
Í þrígang stóðu fundargestir upp og klöppuðu Gunnari lof í lófa," segir Óttar Felix Hauksson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi en þar var samþykkt tillaga Gunnars Birgissonar um að Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi flokksins, tæki við sem bæjarstjóri Kópavogs. Þetta var niðurstaða af fundi flokkstrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þar sem tvær tillögur voru samþykktar. Annarsvegar að Gunnsteinn tæki við bæjarstjórastólnum. Síðan var samþykkt einróma stuðningsyfirlýsing til Gunnars Birgissonar. Á sama tíma bárust þær fregnir frá Framsóknarmönnum að tillaga þess eðlis að slíta samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn hefði verið felld. Þess vegna þarf nú að bíða þar til á næsta bæjarstjórnarfundi og sjá hvort nýr Bæjarstjóri verði samþykktur. Sjálfir vildu Framsóknarmenn utanaðkomandi aðila í starfið. Svo virðist sem Gunnar hafi notið mikils stuðnings á fundinum í kvöld en mikið var klappað og svo tillögur hans um eftirmann samþykktar. Óttar sagði árásir á Gunnar vera komnar frá herbúðum andstæðinganna. Hann sagði málið varðandi lífeyrissjóðinn sýna siðferðisbrest Flosa Eiríkssonar, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar og Ómars Stefánssonar, bæjarfulltrúa Framsóknar. Hér fyrir neðan má lesa tillögur annarsvegar Gunnars Birgissonar og svo tillögur Jóhanns Ísbergs formanns félags Sjálfstæðismanna í Kópavogi: Undirritaður leggur til að annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins í kópavogi, Gunnsteinn Sigurðsson, taki við starfi mínu sem bæjarstjóri í Kópavogi, þar sem ég hef ákveðið að stíga til hliðar. Bæjarstjóraembættið fellur í hlut sjálfstæðisflokks samkvæmt samkomulagi sem gert var á milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Kópavogs sem gert var árið 2006. Gunnar I. Birgisson. -- Fulltrúarráð sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi lýsir yfir fyllsta trausti á störf Gunnars Birgissonar og stuðningi í þeim erfiðu málum sem hann hefur gengið í gegnum undanfarnar vikur. Jóhann Ísberg.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira