Erlent

Mannskæð flóð í Saudi Arabíu

Frá Mekka í Saudi Arabíu. Mynd/AP
Frá Mekka í Saudi Arabíu. Mynd/AP
Yfirvöld í Saudi Arabíu segja að minnsta kosti 100 manns hafi farist í miklum flóðum í landinu en frá því á miðvikudag hefur mikið rignt. Fjölda fólks er saknað og því talið líklegt að fleiri finnist látnir. Flestir eru taldir hafa drukknað í bílum sínum eða kramist þegar brýr hrundu vegna mikilla vatnavaxta.

Ástandið er einna verst borginni Jeddah sem stendur við Rauðahafið. Borgirnar Rabigh og Mekka eru einnig illa leiknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×