Leyfir honum að njóta vafans 23. nóvember 2009 04:00 Hamid Karzai segist nú ætla að taka til óspilltra málanna við að útrýma spillingu.Fréttablaðið/AP
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Hamid Karzai verði að standa við stóru orðin, nú þegar hann hefur annað kjörtímabil sitt í embætti forseta Afganistans. Hamid Karzai lofaði bót og betrun þegar hann tók formlega við embættinu á fimmtudag. Hann hét því að sækja spillta embættismenn til saka og sjá til þess að þeim yrði ekki hlíft við refsingu lengur. Clinton hefur, eins og fleiri ráðamenn á Vesturlöndum, harðlega gagnrýnt Karzai og ríkisstjórn hans fyrir aðgerðaleysi gagnvart spillingu, sem er útbreidd meðal valdastéttar landsins. Hún virtist þó ætla að leyfa honum að njóta vafans um sinn, en lofar að Bandaríkin og alþjóðasamfélagið muni beita hann þrýstingi. „Það er erfitt verkefni að vera forseti og við munum gera okkar besta til þess að sinna því af heilindum í framtíðinni,“ sagði Karzai í innsetningarræðu sinni á fimmtudag. Í ræðu sinni lýsti hann áhuga sínum á að verða sameiningarafl allra Afgana og ítrekaði boð sitt til mótframbjóðenda sinna um ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn. Forsetakosningarnar í sumar hafa verið harðlega gagnrýndar fyrir kosningasvik, ekki síst af hálfu stuðningsmanna Karzais í suðurhluta landsins.- gb
Mest lesið „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ Innlent Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Erlent Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Innlent Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Innlent Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð Innlent „Hún er albesti vinur minn“ Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent Stigmögnunin heldur áfram Erlent Skipulögð brotastarfsemi er komin til að vera Innlent Einn rólegur, annar afar ósáttur Innlent Fleiri fréttir Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Sjá meira