Tómlegt í plötubúðum 2. febrúar 2009 05:00 Halldór Gunnar er annar frá hægri. Lay Low vinnur ekki lengur í búðinni.
Ólöglegt niðurhal hefur sett strik í reikning plötubúða um allan heim. Stórum plötubúðum með mikið og breitt úrval hefur fækkað á meðan litlar sérhæfðar plötubúðir þrauka. Á Íslandi er Skífan í hlutverki risans á meðan búðir eins og Smekkleysa og 12 tónar eru litlu sérhæfðu búðirnar. „Úrvalið skánaði mikið eftir að Sena tók Skífuna aftur yfir. Ástandið var satt að segja alveg hörmulegt á meðan Árdegi rak Skífubúðirnar. Það var enginn metnaður. Það tók til dæmis heilan mánuð fyrir nýjustu Metallica-plötuna að komast í rekkana hjá okkur þótt það væri mikill áhugi fyrir plötunni og við hefðum getað mokað henni út,“ segir starfsmaður í Skífunni. Hann segir allt á uppleið nú og Höskuldur Höskuldsson hjá Senu tekur undir það. „Þetta voru orðnar handónýtar búðir þegar við tókum við þeim um miðjan nóvember. Okkar fyrsta verkefni var að dæla plötum í búðirnar því það var hreinlega ekkert til í þeim.“ Fréttablaðið skoðaði úrvalið í síðustu viku og var hálfdapurlegt um að litast. Af plötunum á topp 10 í Bretlandi voru til þrír titlar, af topp 10 í Bandaríkjunum voru til fjórir titlar. Tímaritið Rolling Stone bjó til frægan lista yfir bestu plötur allra tíma og Skífan átti ekki nema þrjár af tíu efstu plötunum. Meistaraverk eins og London Calling með Clash, Revolver og Sgt. Pepper‘s með Bítlunum og Blonde on Blonde og Highway 61 Revisited með Bob Dylan voru ekki til. Staðan var þó aðeins betri með innlendar plötur. Bestu plötur Íslandssögunnar (samkvæmt kosningu í bókinni Eru ekki allir í stuði) voru allflestar til. En Höskuldur kann skýringar á þessu. „Það eru búin að vera jól og svo byrjuðu útsölurnar. Það er bara verið að fylla á rekkana núna.“ „Minn metnaður liggur í því að eiga allt það sem plötubúð þarf að eiga,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, framkvæmdastjóri Skífunnar. Hann gerir sér grein fyrir því að Skífan er flaggskip íslenskra plötubúða. „Við erum náttúrlega bara með ákveðið mikið pláss, en það þarf að vera til góður „back-catalogue“ og líka eitthvað sem enginn þekkir svo fólk geti gramsað og uppgötvað eitthvað nýtt. Allar gömlu íslensku plöturnar eiga að vera til hjá okkur, það sem á annað borð er til hjá útgefendum. Sjálfur vil ég geta labbað inn í plötubúð og fengið Lifun, The Wall og Sumar á Sýrlandi og þannig skal það vera.“ drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Sjá meira