„Við eða Sjálfstæðisflokkurinn“ 20. mars 2009 17:03
Pólarnir í íslenskum stjórnmálum eru Vinstrihreyfingin grænt framboð og Sjálfstæðisflokkurinn. Flokkarnir eru hinir raunverulegu valkostir, að mati Steingríms J. Sigfússonar. „Sjálfstæðisflokkurinn eða við. Við, flokkurinn sem alls ekki hefur það á samvisku sinni að hafa leitt Sjálfstæðisflokkinn til valda eða haldið honum þar. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn í þröngum skilningi, hann er víðtækt valdanet, samansúrrað bandalag hagsmuna sem hefur á þessum langa valdatíma lagt þéttriðið net sitt í stjórnsýslunni, fjármálaheiminum og viðskiptalífinu," sagði Steingrímur í setningarræðu sjötta landsfundar Vinstri grænna sem hófst á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Steingrímur sagði mikilvægt að hafa í huga að Sjálfstæðisflokkurinn er eitt og kjósendur hans gegnum tíðina annað. Hafi Sjálfstæðisflokkurinn brugðist þjóðinni, þá hefur hann brugðist kjósendum sínum enn freklegar, að mati Steingríms. „Kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem héldu sig vera að kjósa trausta efnahagsstjórn, sem Sjálfstæðismenn auglýstu sem stærsta velferðarmálið, ætluðust ekki til þess, voru ekki að kjósa það, að efnahag landsins yrði rústað."VG varaði við hruninu Steingrímur sagði að Vinstri grænir hafa ekki lofað skattalækkunum og varað við ofvexti fjármálageirans allt frá 2004. „Á hverju ári síðan, 2006, 2007 og 2008 fluttum við þingsályktunartillögu og síðast frumvarp um aðgerðir í efnahagsmálum, aðgerðir til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika, styrkja þyrfti gjaldeyrisforðann og stöðva þá óheillaþróun, verðbólgu, okurvaxta, viðskiptahalla og skuldasöfnunar, sem var að sigla íslensku þjóðarskútunni í kaf." Steingrímur sagði að Vinstri grænir hafi haft sérstöðu íslenskra stjórnmálaflokka hvað þetta snerti. „Það vorum við sem vorum helstu, og oftast því miður einu, gagnrýnendur þeirrar nýfrjálshyggju- og græðgisvæðingarstefnu sem hér var fylgt." „Nú vilja ýmsir Lilju kveðið hafa, og ég get ekki neitað því að ég brosi út í annað þegar að þátttakendur í hildarleiknum sjálfum, eða þeir sem áttu að standa þar á verði, tíunda nú hversu gagnrýnir þeir hafa verið á útrásina og hversu oft þeir hafa varað við."Afkastamikil ríkisstjórn Steingrímur sagði að Vinstri grænir hafi ekki legið á liði sínu og að núverandi ríkisstjórn hafi verið starfsöm og afkastamikil. Hann sagði ríkisstjórnina hafa komið ótrúlega miklu í verk og nefndi sem dæmi endurskipulagningu Seðlabankans, endanlegt afnmám eftirlaunalaganna og opnað hafi verið fyrir útgreiðsla séreignarsparnaðar. „Samstarf núverandi ríkisstjórnarflokka hefur gengið vel og nýtur stuðnings þjóðarinnar. Það leggur góðan grunn að framhaldinu."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Sjá meira