Sprengigos yfirvofandi á Filippseyjum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 22. desember 2009 08:09 Fjallið Mayon.
Tæplega 45.000 manns dvelja nú í sérstökum búðum í Albay-héraðinu á Filippseyjum og bíða þess sem verða vill með eldfjallið Mayon. Í allt eru það 9.000 fjölskyldur sem hafa ekki hugmynd um hvort þær muni nokkurn tímann snúa aftur til heimkynna sinna í nágrenni við eldfjallið Mayon sem er nú á suðupunkti og vara jarðvísindamenn við því að yfirvofandi gos gæti orðið svo öflugt að fjallið springi hreinlega. Mayon er virkasta eldfjall Filippseyja og hefur gosið tæplega 50 sinnum síðan á 17. öld. Stórt svæði í kringum fjallið hefur verið lýst bannsvæði og er engum heimilt að fara þar um enda hafa yfirvöld virkjað viðbúnaðarstig fjögur sem táknar að sprengigos muni að öllum líkindum eiga sér stað í fjallinu á allra næstu dögum. Sést hefur þó til einhverra sem hafa laumast inn á svæðið til að hyggja að heimilum sínum þrátt fyrir að her og lögregla standi vörð allan sólarhringinn. Miklar drunur berast nú frá fjallinu og síðasta sólarhring hefur jarðvísindastofnun Filippseyja mælt 1.942 jarðskjálfta sem tengjast eldsumbrotum þar og má glöggt sjá glóandi hraunkviku seitla í taumum niður fjallshlíðarnar. Fjallið er um 500 kílómetra suður af höfuðborginni Manila en eldvirkni er mikil á Filippseyjum. Eyjarnar standa á svokölluðum eldhring sem gerður er úr ótal misgengjum og teygir sig um Kyrrahafið.
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira