Innlent

Segja Bankasýsluna eitt stórt leikrit

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar og fulltrúi í viðskiptanefnd.
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar og fulltrúi í viðskiptanefnd. Mynd/GVA

„Við í minnihlutanum teljum að þetta sé eitt stórt leikrit," segir Eygló Harðardóttir, fulltrúi Framsóknar í viðskiptanefnd Alþingis, um Bankasýslu ríkisins.

Bankasýslunni er ætlað að fara með eignahlut ríkisins, einkum í fjármálafyrirtækjum, svo og að vinna að einkavæðingu þeirra. Tilgangurinn er ekki síst sá að ákvarðanir um rekstur þessara fyrirtækja verði hafin yfir vafa um pólitísk afskipti. Eygló telur þó að svo verði ekki.

„Auðvitað verður það ráðherrann sem stjórnar þessu frá A til Ö," bætir Eygló við, og á við fjármálaráðherrann Steingrím J. Sigfússon.

Meðal þess sem minnihlutinn hefur gert athugasemdir við í Bankasýslufrumvarpinu er að það er fjármálaráðherra sem skipar í stjórn sýslunnar, en ekki einhvers konar valnefnd. Spurð hvort það sé ekki eðlileg tilhögun mála þar sem fjármálaráðherra beri pólitíska ábyrgð á starfi hennar segir Eygló:

„Mér finnst það hafa sýnt sig í gegnum tíðina að þessi pólitíska ábyrgð ráðherra er afar lítil hér á landi. Ég á eftir að sjá dæmi um það að ráðherra axli einhverja pólitíska ábyrgð."

Eygló gerir einnig athugasemd við að eigendastefna ríkistjórnarinnar hafi ekki verið lögð fyrir nefndina, en frumvarpið byggir að miklu leyti til á henni.

„Fyrr vitum við ekki hvað sýslan á að gera," segir Eygló.

Nefndaráliti meirihluta viðskiptanefndar um Bankasýslufrumvarpið var skilað fyrr í dag líkt og Vísir greindi frá. Mun málið fara í aðra umræðu í þinginu á þingfundi síðar í dag.




Tengdar fréttir

Bankasýslan mun fara með eignaumsýsluna

Bankasýsla ríkisins mun fara með hlutafélag um eignaumsýslu ríkisins, auk þess að fara með hlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Þetta er lagt til í nefndaráliti meirihluta viðskiptanefndar og umsögn efnahags- og skattanefndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×