Kafka varð ekki langlífur 13. mars 2009 06:45 Skemmtistaðnum Kafka lokað. Nuno da Palma, rekstrarstjóri Kafka, kom að lokuðum dyrum þegar bóhemstaðnum Kafka var lokað eftir stuttan líftíma. Eigendur Santa Maria hafa tekið við keflinu og opna nýjan stað í dag. Fréttablaðið/Pjetur „
Það kom bara tilboð á föstudaginn fyrir viku sem við gátum ekki hafnað. Við héldum fyrst að þetta væri bara eitthvert djók en svo komu þeir á mánudeginum til að fylgja tilboðinu eftir og við létum bara slag standa,“ segir Páll Gunnar Ragnarsson, annar eigandi hússins sem stendur við Laugaveg 22. Glöggir vegfarendur í miðbæ Reykjavíkur hafa tekið eftir því að bóhem-staðnum Kafka hefur verið lokað eftir skamman líftíma, um það bil einn og hálfan mánuð. Í staðinn munu eigendur Santa Maria opna þar nýjan veitingastað í dag. Kafka var nefndur eftir þýska skáldinu Franz Kafka sem lést langt fyrir aldur fram aðeins 41 árs að aldri og því má segja að staðurinn hafi fylgt fyrirmyndinni eftir. Kafka var opnaður um miðjan febrúar og þá sagði rekstrarstjóri Kafka, Nuno Da Palma, að staðurinn ætti sífellt að taka breytingum og þróast. Hann hefur væntanlega ekki grunað að þróunin yrði sú að staðnum yrði lokað með jafn skömmum fyrirvara og raun ber vitni. Fréttablaðið hafði samband við Nuno vegna málsins og hann viðurkenndi að lokunin hefði komið honum spánskt fyrir sjónir. Páll Gunnar segir að haft hafi verið samband við alla sem að Kafka komu um leið og samningar voru frágengnir og segir því að lokunin hafi ekki átt að koma neinum á óvart. „Þetta bar einfaldlega brátt að. Þeir á Santa Maria eru góðir í sínu fagi og þetta minnkar bara álagið á manni að vita af staðnum í svona góðum höndum.“ David Kordek hjá Santa Maria staðfesti að þetta hefði átt sér lítinn aðdraganda. „Ég held að þetta verði nýtt upphaf fyrir þennan stað,“ segir Kordek. Skiptin hafa engin áhrif á rekstur Barbara sem rekinn er á efri hæð Laugavegs 22 og Frímann Sigurðsson, rekstrarstjóri Barbara, hlakkaði til að fá nýja nágranna. „Núna eykst gleðin í húsinu, Santa Maria-menn verða eflaust góðir grannar.“- fgg
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp „Það má herma“ Tíska og hönnun Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira