Heitustu böndin 2009 5. janúar 2009 02:30 ingo og veðurguðirnir
Nýtt ár er gengið í garð. Þótt það sé kreppa og harmakvein á mörgum vígstöðvum má fastlega búast við áframhaldandi góðæri í íslenska poppinu og rokkinu. Dr. Gunni rýndi í kristalskúluna og reyndi að sjá fram í tímann. Ingó og VeðurguðirnirDynamo fogAð öðrum ólöstuðum var Ingó og Veðurguðirnir spúttnikksveit ársins 2008 í poppinu. „Bahama" varð svokallaður rosasumarsmellur og næsta lag „Drífa" gerði það einnig gott. Þótt bandið sé af ættkvísl íslenskra „sveitaballa"-banda á það líka rætur í pönkinu því stór hluti þess var einu sinni í Haltri hóru. Fyrsta platan hlýtur að vera á teikniborðinu en á meðan aðdáendurnir bíða geta þeir huggað sig við að Ingó syngur annað lag Hallgríms Óskarssonar í Eurovision-forkeppninni. Dynamo Fogsudden weather changeHljómsveitin Dynamo Fog hefur vakið lukku með laginu „Rock n roll", sem er nógu einfalt og grípandi til að smellpassa í handboltaauglýsingu. Hljómsveitin vakti athygli á síðustu Airwaves-hátíð og má fastlega búast við frekari afrekum hjá henni á þessu ári, plötu til dæmis. Bandið er tríó, skipað vönum mönnum. Axel Árnason fyrsti trommari Naglbíta, þenur nú bassann og syngur, Jóndóri Ólafssyni, áður í Lada Sport, syngur og spilar á bassa, og Arnar Ingi Viðarsson, sem hefur trommað með Retron og Ísidór, situr við settið. Sudden Weather ChangenöglListaháskólabandið Sudden Weather Change hefur verið að geta sér gott orð í indie-senunni frá því 6-laga heimabrennd plata kom út árið 2006. Nú er von á fyrsta albúminu í mars/apríl og miðað við lögin sem liggja með sveitinni á Netinu er von á feitum jaðarpakka. Nöglfor a minor reflectionGruggið lifir á Grundarfirði þaðan sem þessir þéttu náungar koma. „My world" hefur hljómað ítrekað á Xinu og Nögl er langt komin með sína fyrstu plötu sem kemur út með hækkandi sól. Nú er að sjá hvort gruggið eigi inni fyrir kombakki. For a minor reflectionebergÞessir ungu póst-rokkarar eru á góðri siglingu eftir Sigur Rósar upphitunartúra og jákvæðar umsagnir í erlendum tónlistarblöðum. Þeir ætla sér eflaust stórt hlutverk og ný plata hlýtur að vera útslitaatriði. Fyrsta platan kom út 2007 þegar bandið var nýbyrjað svo næsta plata er orðin löngu tímabær. EbergÁrstíðirEinar Tönsberg, öðru nafni Eberg, sannaði sig eftirminnilega á annarri plötunni sinni, Voff Voff, sem kom út árið 2006. Hann hefur að undanförnu unnið að þriðju sólóplötunni sinni, Antidote, og mun bera hana á borð á árinu. Einar syngur nú á íslensku í fyrsta skipti og gæti það fært honum meiri og verðskuldaðri útbreiðslu en áður. Lagið „Niðurlönd" hefur þegar gert það gott. ÁrstíðirÓlöf ArnaldsÞetta fjögurra manna band hefur verið að vekja athygli og mun eflaust halda því áfram í ár. Tónlistin er ljúf og minnir bæði á gamla meistara eins og Simon & Garfunkel og yngra efni eins og Turin Breaks og Damien Rice. Hún er knúin áfram af tveimur kassagíturum, baritón-gítar, sellói og angurværum samsöng. Hvað annað?MugisonÁrið 2008 var fínt í íslenskri tónlist og þetta ár verður eflaust jafn gott ef ekki betra. Í kreppu blómstrar menningin og allt það. Ýmsir kunningjar músikáhugamanna eru í startholunum með nýjar plötur. Mugison verður með nýja plötu og hún verður „óhefðbundin". Ný plata frá Ensími verður líklega að staðreynd og líka ný plata frá Leaves. Gus Gus eru nærri því tilbúnir með nýja plötu og eðalrokkararnir í Kimono hugsa sér alvarlega til hreyfings. Agent Fresco kýlir líklega á plötu í fullri lengd og Morðingjarnir hnoða í eina feita. Langt er síðan FM Belfast tóku upp plötuna sína How to Make Friends og því má fastlega búast við nýrri frá þeim. Einnig er næsta víst að Múm, Ólöf Arnalds og Hjaltalín komi með nýjar plötur og að Slow Blow verði með tvær, nýja hljóðversplötu og plötu með lögum úr kvikmyndinni The Good Heart. Og þetta er auðvitað bara toppurinn á ísjakanum.
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Fleiri fréttir Fjölskylda truflaði flutning á ísraelska atriðinu Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Sjá meira