Innlent

Selja merki til að kaupa mat

Nýtt ísland, merki sem fjölskylduhjálpin selur
Nýtt ísland, merki sem fjölskylduhjálpin selur

 Um helgina gefst fólki kostur á að styrkja sérstakt átak Fjölskylduhjálpar Íslands með því að kaupa sérsteypt málmbarmmerki í fjölda verslana um landið. Ætlunin er að safna fé í sjóð sem ætlað er að standa straum af fyrirhuguðum auknum kostnaði skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar við matarkaup.

Barmmerkið er í laginu eins og Ísland og á það er letrað „Nýtt Ísland“. Merkið kostar 500 krónur og er fáanlegt í í Aðalskoðun, Blómavali, Bónus, Byko, Euro­pris, Fjarðarkaupum, Hagkaupum, Húsasmiðjunni, Kaffitári, Kaskó, N1, Nettó, Samkaupum, Select, Skeljungi og Tíu ellefu.- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×