Sveitarfélögin kvíða nýju fasteignamati 30. maí 2009 06:15 Reykvíkingar borga 0,214 prósent af fasteignamati íbúðarhúsnæðis. Borgin getur hækkað það hlutfall í 0,5 prósent falli fasteignamatið verulega. fréttablaðið/anton
Ljóst þykir að fasteignamat mun lækka umtalsvert um mánaðamótin, þegar Fasteignaskrá Íslands gefur út nýtt mat. Lækkunin þýðir verulegt tekjutap fyrir sveitarfélögin í landinu á næsta ári, ef álagningarhlutfall einstakra sveitarfélaga verður ekki hækkað. Áhyggjur sveitarstjórnarfólks komu greinilega í ljós á nýlegum samráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS). Fast tekjustreymi sveitarfélaga byggir á útsvari, fasteignasköttum og framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Tekjur þeirra af fasteignasköttum, sérstaklega á vaxtarsvæðum, hafa hækkað jafnt og þétt á síðustu árum vegna uppgangs á fasteignamarkaði. Nú er sá markaður hruninn og er búist við að lækkun fasteignaverðs muni nema tugum prósenta áður en um hægist. Fasteignaskattar skiluðu sveitarfélögunum í landinu ríflega 22 milljörðum króna í tekjur á síðasta ári og hvert prósent til lækkunar nemur því um 220 milljónum króna lægri tekjum. Halldór Halldórsson, formaður SÍS, segir ljóst að allar tekjur sveitarfélaganna séu að lækka. „Tilhneigingin hlýtur að verða sú að menn reyna að halda þessum tekjum óbreyttum enda eini tekjustofninn sem þau geta haft áhrif á.“ Álagningarhlutfall hefur verið lækkað mikið þar sem fasteignaverð hefur hækkað hvað mest í þenslu síðustu ára. Noti sveitarfélögin það svigrúm sem þau hafa til hækkunar telur Halldór að mörg sveitarfélög geti haldið óbreyttum tekjum, þótt til mikillar lækkunar fasteignamats komi. Þetta eigi þó ekki við um öll sveitarfélög. Ef Reykjavík er tekin sem dæmi þá eru tekjur af fasteignaskatti í ár áætlaðar 2,6 milljarðar af íbúðarhúsnæði, tveir milljarðar af opinberu húsnæði og 7,7 milljarðar af atvinnuhúsnæði. Ef horft er til fasteignaskatta og fasteignagjalda íbúðarhúsnæðis þá eru tekjur borgarinnar í ár áætlaðar tæpir fjórir milljarðar miðað við núverandi skattaprósentu. Væri hún fullnýtt væru tekjur borgarinnar tæpir 7,5 milljarðar króna. Svigrúm borgarinnar til að halda sömu tekjum er því mikið. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Sjá meira