Stjórnin fylgir ekki fordæmi Ögmundar 30. maí 2009 06:00 Samráðherrar Ögmundar Jónassonar munu ekki feta í fótspor hans og afsala sér ráðherralaunum. Ögmundur þiggur einungis þingfararkaup, í það minnsta fram að áramótum.fréttablaðið/vilhelm
Samráðherrar Ögmundar Jónassonar ætla ekki að fylgja fordæmi hans og afsala sér ráðherralaunum. Þegar Ögmundur tók við ráðherradómi í febrúar ákvað hann að þiggja einungis þingfararkaup, í það minnsta út árið. Það nemur 520 þúsund krónum, en sem ráðherra á hann rétt á 855 þúsund króna mánaðarlaunum. Ögmundur útskýrði ákvörðunina á sínum tíma með vísan til slæms efnahagsástands. Fréttablaðið sendi fyrirspurn á alla samráðherra Ögmundar, utan Gylfa Magnússonar og Rögnu Árnadóttur, þar sem þau þiggja ekki þingfararkaup. Svör bárust ekki frá Kristjáni L. Möller. Ráðherrarnir sendu flestir hverjir staðlað svar þar sem minnt var á þær breytingar sem orðið hefðu á kjörum ráðherra undanfarið. Var þar fyrst talinn til úrskurður kjararáðs frá 27. desember 2008 um að lækka laun forsætisráðherra um fimmtán prósent og annarra ráðherra um fjórtán prósent. Við það hefðu laun ráðherra lækkað um allt að 163.209 krónur. Einnig var bent á samþykkt Alþingis um afnám laga um lífeyrisréttindi forseta, ráðherra, þingmanna og hæstaréttardómara. Það hefði skert launakjör ráðherra. Þá hefðu dagpeningar allra ríkisstarfsmanna verið skertir. Jóhanna Sigurðardóttir, Árni Páll Árnason, Katrín Júlíusdóttir, og Svandís Svavarsdóttir skiluðu öll inn þessu staðlaða svari. Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon vísuðu einnig til sömu raka. Einn ráðherrann sagðist í trúnaði eiga erfitt með að koma orðum að því að Ögmundur væri einfaldlega betri maður en hann. Árni Páll og Katrín Júlíusdóttir tiltóku bæði að þeim þætti óeðlilegt að ráðherrar tækju ákvarðanir um eigin starfskjör, hvort sem væri til hækkunar eða lækkunar. Slíkar ákvarðanir ætti að taka í faglegu ferli „fjarri sjálfskömmtun stjórnmálamanna“ líkt og Katrín orðaði það. Össur segist munu þiggja þau laun sem kjararáð ákveði hverju sinni. Katrín Jakobsdóttir segir fulla ástæðu til að skoða hvort lækka eigi laun ráðherra enn frekar. Slík ákvörðun eigi að vera heildstæð og ganga jafnt yfir línuna. Þá vísuðu margir ráðherrar í það að til skoðunar væri að lækka æðstu laun hins opinbera enn frekar. Enginn ráðherranna tjáði sig um það hvort þeir væru ósammála Ögmundi um að þetta væri rétt leið fyrir æðstu ráðamenn. kolbeinn@frettabladid.is klemens@frettabladid.is
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Sjá meira