Samkeppniseftirlit getur flýtt fyrir endurreisninni 3. apríl 2009 03:45 „
Ef það er vilji til að gera allt sem hægt er til að flýta efnahagsbatanum þá þarf að efla Samkeppniseftirlitið verulega til að takast á við þær aðstæður sem komnar eru upp," segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins (SE). Páll telur að fjölgun starfsmanna úr rúmlega tuttugu í þrjátíu á næstu misserum myndi gera SE kleift að takast á við öll verkefni með skilvirkum hætti. „Við höfum ekki legið á því hversu mikilvægt það er að SE fái meira svigrúm. Við höfum kallað eftir því við fjárveitingavaldið að veita stofnuninni meira fé til að hægt sé að sinna fleiri verkefnum," segir Páll Gunnar. „Það er einfaldlega þannig í dag að við verðum að forgangsraða talsvert mikið. Þó að starfið gangi vel er ýmislegt sem við þurfum að setja aftar í röðina." „Ég er eindregið þeirrar skoðunar að SE hafi mjög miklu hlutverki að gegna á tímum eins og við lifum núna. Jafnvel meiru en í góðu árferði því það skiptir miklu máli að endurreisn efnahagslífsins verði með þeim hætti að hér rísi atvinnulíf þar sem er virk og öflug samkeppni," segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, sem jafnframt er í leyfi sem stjórnarformaður SE á meðan hann gegnir ráðherraembætti. Spurður hvort stofnunin sé undirmönnuð segir Gylfi að hún gæti án efa notað fleiri starfsmenn. „Þröngur fjárhagur hins opinbera gerir fjölgun hins vegar erfiða." Gylfi telur að öflugt samkeppniseftirlit ýti undir fjölgun starfa. „Rannsóknir á kreppunni miklu í Bandaríkjunum benda til að veiking samkeppnisreglna og leyfisveitingar til stórra samruna töfðu endurreisnina og lengdu kreppuna um mörg ár." Tímabundna fjölgun starfsmanna telur Gylfi aðeins eitt af því sem kemur til greina. „Það má efla stofnunina með fjárheimildum til að kaupa sérfræðivinnu." Páll Gunnar segir gríðarlega mikilvægt að stofnunin hafi kost á að nýta sérfræðiþekkingu utan stofnunarinnar. Verkefnin séu svo fjölbreytt og flókin. „Við höfum reynt að nýta alla þekkingu sem hægt er að draga að. Það hefur gengið vel en við þurfum meira svigrúm til þess." SE hefur í dag úr rúmlega 300 milljónum króna að spila á ári. Nýlega var farið fram á fimmtíu milljóna króna aukafjárveitingu á þessu ári. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira