Barði hitar upp fyrir Cannes 3. apríl 2009 05:30 Barði Jóhannsson ásamt Hrafni Thoroddsen í tónleikaferðinni í fyrra. Þeir félagar verða í sviðsljósinu í Listasafni Reykjavíkur í kvöld.
Hljómsveitin Bang Gang spilar í Listasafni Reykjavíkur í kvöld á tónlistarhátíðinni Nokia on Ice. Sveitin hefur einnig bókað sig á kvikmyndahátíðina í Cannes sem verður haldin í maí. Tónleikarnir í kvöld verða þeir fyrstu hjá Bang Gang á árinu en sveitin var sérlega dugleg í fyrra þegar hún spilaði á um fjörutíu tónleikum víðs vegar um Evrópu. „Þetta verður skemmtilegt. Það er líka gaman að spila í Listasafninu, það er skemmtilegur staður,“ segir Barði Jóhannsson. Með honum á sviðinu verður sama gengi og ferðaðist með honum um Evrópu, þeir Arnar Guðjónsson og Nói Steinn úr Leaves, Hrafn Thoroddsen úr Ensími og bassaleikarinn Stephan Bertrand, ásamt ljósa- og sjónlistamanninum Frank Esposito. „Þegar við héldum útgáfutónleikana í fyrra komst ljósamaðurinn okkar ekki með en hann verður með núna þannig að þetta verður ennþá flottara,“ segir Barði. 21. maí spilar Bang Gang síðan á Cannes-hátíðinni í Frakklandi og hefur þar stórt svið út af fyrir sig við ströndina. „Þetta verður mjög skemmtilegt því ég hef aldrei spilað í Cannes. Ég hef oft spilað í borgunum í kring en aldrei í Cannes.“ Barði fékk giggið eftir að skipuleggjandi tónleikanna hafði samband við höfundarréttarfyrirtæki hans Universal og óskaði eftir kröftum hans. Kvikmyndaáhugi Barða lék þar lykilhlutverk því tónlist hans hefur hljómað í þó nokkrum bíómyndum í gegnum tíðina og þótti hann því kjörinn í verkefnið. Fleiri spennandi verkefni eru í gangi hjá Barða, þar á meðal ný plata sem hann tók upp með írska tónlistarmanninum Craig Walker. Lag af henni, Bright Lights Big City, hljómar einmitt í nýjustu mynd frönsku leikkonunnar Catherine Deneuve, La fille du RER, sem verður frumsýnd í næstu viku. Einnig verða tónleikar sem dúettinn Lady & Bird, hliðarverkefni Barða, hélt með Sinfóníuhljómsveit Íslands gefnir út á geisladiski í haust á vegum EMI úti um allan heim. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira