Síðustu forvöð að sjá sýningar 3. apríl 2009 04:30 Sýningum á Milljarðamærinni lýkur í apríl. Sigrún Edda og Unnur Ösp í hlutverkum sínum. Mynd/Grímur Bjarnason
Leikhúsaðsókn hefur verið afar góð á sviðsetningar í leikhúsum landsins á þessum vetri. Í þessum mánuði hverfa nokkrar vinsælar sviðsetningar af fjölunum til viðbótar þeim sem eru að baki. Uppselt er á 27 sýningar á Kardemommubænum í Þjóðleikhúsi fram til 6. júní og hinn 8. maí kemur á fjalir Borgarleikhússins fjölskyldusýningin Söngvaseiður og er þegar uppselt á nær þrjátíu sýningar. Bæði þessi verk verða á fjölum stóru leikhúsanna þar til sumarleyfi hefjast ef að líkum lætur. Fló á skinni hefur verið sýnd yfir 140 sinnum og lýkur sýningum á þessu vinsæla gamanverki í apríl. Fjórar sýningar eru eftir. Er þetta í þriðja sinn sem Leikfélagið sýnir þennan vinsæla farsa. Tveir úr einleikjaröð Leikfélagsins hverfa af sviðinu í þessum mánuði, Óska og bleikklædda konan og Ég heiti Rachel Corrie, en sýningum verður haldið áfram á Sannleika Péturs Jóhanns og í maí og júní verða ekki færri en fjórar frumsýningar í Borgarleikhúsinu: einleikurinn Djúpið eftir Jón Atla Jónasson með Ingvari E. Sigurðssyni, en verkið er nú á leikför um Skotland í enskri sviðsetningu; Ökutímar sem leikið var norður á Akureyri fyrir ári og Magnús Geir kom með hingað suður í farteskinu og Harry og Heimir sem frumsýnt verður hinn 17. apríl á nýja sviði. Það eru þeir Spaugstofudrengir, Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson sem endurvekja sitt gamla grín af Bylgjunni. Og svo Söngvaseiður. Af fjölum Borgarleikhúss víkja líka Milljarðamærin sem verður leikin fjórum sinnum til í þessum mánuði og Þú ert hér, nýfrumsýnt ádeiluverk Mindgroup um hugarfarsástand í miðju hruni. Fimm sýningar eru auglýstar í apríl á Þrettándakvöldi í Þjóðleikhúsinu, en áfram heldur þar sýningum á Sædýrasafninu, Eternum og Skoppu og Skrýtlu. Fyrir norðan eru Fúlar á móti í fullum gangi og í Hafnarfirði er góð aðsókn að Dubbeldusch Björns Hlyns Haraldssonar. Í Borgarnesi fer að styttast í sýningum á Mr. Skallagrímsson sem Benedikt Erlingsson hefur brátt leikið 200 sinnum, en þar heldur áfram sýningum á Brák. Ekki er ljóst hvað verður í boði í leikhúsum í sumar, utan að Við borgum ekki verður á fjölum Borgarleikhússins og Grease birtist áhugasömum í þriðja sinn í Lofkastalanum. Leikhúsfólk getur ekki kvartað yfir aðsókn enda er það einkenni á krepputímum að aðsókn að leiksýningum er góð. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira