Átta þúsund mótmæla ákvörðun RÚV 2. apríl 2009 08:00 Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, og Páll Magnússon sjónvarpsstjóri eru ekki vinsælustu mennirnir í framhaldsskólum landsins eftir að RÚV ákvað að skera niður útsendingu frá Söngkeppni framhaldsskólanna. „
Ég hef fullan skilning á þeirra reiði en ég vona líka að þeir sýni okkar aðstæðum skilning. Við vissum það, þegar ráðist var í þennan niðurskurð, að þetta myndi lenda á einhverjum og því miður bitnar þetta á þeim núna," segir Páll Magnússon útvarpstjóri. Honum þykir miður að geta ekki sýnt beint frá Söngkeppni framhaldsskólanna en bætir því við að menntskælingar séu ekki þeir einu sem þurfi að horfa á eftir uppáhaldi sínu. „Íþróttahreyfingin hefur líka orðið fyrir barðinu á þessum niðurskurði enda höfum við þurft að draga mikið úr dýrum, beinum útsendingum." Ekki hafði enn verið ákveðið hvort söngkeppnin verður tekin upp þegar Fréttablaðið hafði samband við Þórhall Gunnarsson, dagskrárstjóra RÚV. Tæplega átta þúsund hafa skráð sig á Facebook-síðuna þar sem skorað er á RÚV að sýna beint frá Söngkeppni framhaldsskólanna. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka íslenskra framhaldsskólanema, Ásgeir Guðmundsson, skrifaði menntamálaráðherra meðal annars bréf þar sem hann hvatti hana til að leggja sitt á vogarskálarnar og fá þessari ákvörðun breytt. „Ég trúi því að þú látir ekki við sitja, talir máli unga fólksins og komir Söngkeppni framhaldsskólanna í sjónvarpið á ný. Valdið er nú loksins í þínum höndum þó mögulega óbeint í þessu tilviki en varla situr þú hjá og þegir," skrifar Ásgeir í bréfi sem einnig var sent á fjölmiðla. Fjölmargir hafa lýst yfir óánægju sinni í athugasemdakerfi Facebook-síðunnar. „Ég er löngu búin með framhaldsskólann en er alveg sammála um að þessi keppni eigi að vera á RÚV - nóg er fyrir eldri kynslóðina. Skemmtileg keppni sem ég horfi alltaf á," skrifar Elísabet Guðjónsdóttir á Facebook-síðuna í gær.- fgg
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira