Travolta berst við fjárkúgara Óli Tynes skrifar 1. október 2009 15:16 Travolta fjölskyldan í París. Eins og sjá má leiða bæði hjónin Jett.
John Travolta og eiginkona hans Kelly Preston eru nú á Bahamaeyjum til að bera vitni í réttarhöldum gegn tveim mönnum sem eru sakaðir um að hafa reynt að kúga fé út úr hjónunum eftir að Jett sonur þeirra lést þar í janúar síðastliðnum. Flogaveikur Fjölskyldan ætlaði að eyða áramótunum á Bahamaeyjum. Hinn sextán ára gamli Jett Travolta var bæði einhverfur og flogaveikur. Flogaköst hans vöruðu frá 45 sekúndum upp í nokkrar mínútur og hann fékk þau á fimm til tíu daga fresti. Meðvitundarlaus Fyrir rétti skýrði Travolta frá því að að morgni annars janúar hefðu þau Kelly verið vakin vegna þess að Jett fékk mjög slæmt flogakast. Þau þutu niður til sonarins sem lá á gólfinu í baðherbergi sínu. Hann var þá meðvitundarlaus og starfsmaður og starfskona hjónanna voru að gera á honum lífgunartilraunir. Travolta tók við af konunni og reyndi að blása lífi í Jett meðan aðstoðarmaðurinn gaf honum hjartahnoð. Vildi fljúga heim Þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang ætluðu þeir að flytja Jett á sjúkrahús í Nassau en Travolta vildi flytja hann flugleiðis til Bandaríkjanna. Frá Nassau til Miami á Florida er um tuttugu mínútna flug. Travolta undirritaði skjal sem firrti sjúkraflutningamennina allri ábyrgð á því að flytja drenginn ekki á sjúkrahús í Nassau. Vildu 25 milljónir dollara Svo fór þó að lokum að Jett var fluttur þangað og þar lést hann. Ákæran gengur út á að nokkru síðar hafi einn sjúkraflutningamannanna reynt að kúga fé út úr leikaranum. Ákærður með honum er fyrrverandi þingmaður á Bahama. Þeir eru sagðir hafa krafist tuttugu og fimm milljóna dollara fyrir að gera ekki opinbert skjalið sem Travolta undirritaði vegna flutninganna. Löggan í málið Travolta var alveg sama þótt skjalið væri birt en haft var samband við lögregluna vegna tilraunar til fjárkúgunar. Hún mun hafa hlerað samningafund sem Travolta tók þó ekki sjálfur þátt í. Ákæruvaldi segir að sú upptaka sanni ótvírætt sekt hinna ákærðu. Búist er við að réttarhöldin taki margar vikur.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira