Sagði frelsið vera styrk Bandaríkjanna 17. nóvember 2009 05:00 Barack Obama ávarpaði háskólanema í Shanghaí í Kína í gær. Forsetinn er nú á ferðalagi um Asíu fréttablaðið/AP „
Við reynum ekki að troða neinu stjórnskipulagi upp á nokkra þjóð,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti við háskólanema í Shanghaí. Hann er nú staddur í Kína, og hefur lagt á það áherslu í ferðinni að Bandaríkjamenn hafi engan áhuga á að hefta vöxt Kína með nokkrum hætti. Í ræðu sinni í Shanghai lagði hann hins vegar áherslu á mikilvægi tjáningarfrelsis og annarra mannréttinda, en tók jafnframt fram að þetta væru ekki sérbandarískar reglur heldur almenn réttindi. „Ég átta mig á því að ólík lönd hafa ólíkar hefðir,“ sagði hann, en bætti því við að í Bandaríkjunum sé litið á tjáningarfrelsið og óheftan Internetaðgang sem styrk en ekki veikleika. Obama hélt síðan til Peking þar sem Xi Jinping varaforseti tók á móti honum. Síðan hitti hann Hu Jintao forseta. Þeir snæddu saman kvöldverð í gær og ætla að hittast aftur í dag. Á fundi þeirra voru viðskipti, efnahagsmál og loftslagsmál aðalumræðuefnið. Obama sagði meðal annars að nú, þegar vegur Kína fer vaxandi í heiminum, deili landið „byrði leiðtogahlutverksins“ með Bandaríkjunum. „Ég skal segja ykkur það, að önnur lönd í heiminum munu bíða eftir okkur,“ sagði hann. - gb
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Fleiri fréttir Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Sjá meira