Stefnir í 102 milljarða fjárlagahalla Heimir Már Pétursson skrifar 13. desember 2009 19:08 Alþingi mun ræða fjárlagafrumvarpið í vikunni. Mynd/ GVA.
Ekki tekst að minnka halla á fjárlögum næsta árs eins mikið og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu en nú stefnir í að hallinn verði um 102 milljarðar á næsta ári. Framlög til stjórnmálaflokka lækka sem og ráðstöfunarfé ráðherra. Í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í byrjun haustþings var gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs á næsta ári yrðu 468,2 milljarðar króna og útgjöld yrðu 555,6 milljarðar. Hallinn á næsta ári yrði því 87,4 milljarðar. Eftir að fjárlaganefnd Alþingis hefur farið yfir frumvarpið leggur hún til breytingar sem auka útgjöld ríkissjóðs um tæpa 5 milljarða og áætlaðar tekjur lækka um 10 milljarða. Hallinn á næsta ári eykst því um tæpa 15 milljarða og verður ef þessar áætlanir ganga eftir 102 milljarðar. Til samanburðar verður hallinn á fjárlögum þessa árs um 189 milljarðar. Þessar breytingar á fjárlagafrumvarpi næsta árs eru sagðar rúmast innan áætlana stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Vegna betri skuldastöðu ríkissjóðs en áður var talið lækka vaxtagreiðslur hans um 5 milljarða á næsta ári. Sem dæmi um breytingar frá fjárlagafrumvarpi þá var gert ráð fyrir að framlög til stjórnmálaflokka yrðu 371,5 milljónir á næsta ári. Meirihluti fjárlaganefndar lækkar þessi framlög um 10 prósent eða um 37 milljónir króna. Stjórnmálaflokkarnir skipta því á milli sín 301,5 milljónum á næsta ári. Framlög til þingflokka lækka líka. Þau voru áætluð 65 milljónir í fjárlagafrumvarpinu, lækka um 6,5 milljónir og verða 58,5 milljónir. Þá lækkar ráðstöfunarfé ráðherranna úr 70,6 milljónum í 49,4 milljónir, eða um 21,2 milljónir króna og boðað að settar verði samræmdar reglur ráðuneyta um ráðstöfun á þessu fé. Mestar breytingar til útgjaldalækkunar eru hjá félags- og tryggingamálaráðuneyti upp á 1,9 milljarð króna, sem skýrist aðallega af spá um minna atvinnuleysi á næsta ári en áður var áætlað. Mesta breyting til útgjaldaauka er hjá heilbrigðisráðuneytinu upp á 1,5 milljarð króna.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira