Hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs myndi flýta fyrir endurreisn atvinnulífsins 19. mars 2009 17:29 Frá fundinum.
Hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs myndi virka sem blóðgjöf fyrir bygginga- og mannvirkjagerð í landinu og stuðla að því að koma hjólum atvinnulífsins af stað á ný. Þetta var meðal þess sem kom fram á fjölmennum fundi sem meistarafélög í bygginga- og mannvirkjagerð héldu með Óskari Bergssyni, formanni borgarráðs, og Kristjáni Erni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá meistarafélögunum. Þar segir einni að í máli framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins hafi komið fram að mikilvægt sé fyrir lífeyrissjóðina í því árferði sem við byggjum nú við að koma peningum inn í efnahagslífið. „Sagði hann að um þessar mundir stæðu yfir viðræður við borgaryfirvöld um fjármögnunarþörf borgarinnar. Nefndi hann sem möguleika að stofnaður yrði sérstakur sjóður sem lífeyrissjóðirnir tækju þátt í og yrði notaður til að fjármagna framkvæmdir. Var samróma álit fundarmanna að slík lán yrðu notuð til nýbygginga og viðhalds en ekki í rekstur." Þá segir að formaður borgarráðs hafi staðfest að borgaryfirvöld og lífeyrissjóðirnir ættu í viðræðum og þá ætti borgin einnig í viðræðum við Evrópska þróunarbankann um aðkomu hans að fjármögnun verkefna á vegum borgarinnar. „Hann sagði að allir samningar borgarinnar yrðu yfirfarnir og semja þyrfti upp á nýtt um marga þeirra, þá þyrfti að forðast að taka óraunhæfum tilboðum. Hann vakti athygli á að lífeyrissjóðirnir yrðu varla inni í myndinni nema lánskjör væru viðunandi. Aðspurður sagði hann ljóst að borgin myndi bjóða út nýjar lóðir áfram, borgin þyrfti á því að halda. Þegar talið barst að fyrirhugaðri samgöngumiðstöð í höfuðborginni sagði formaður borgarráðs að viðræður væru í gangi við ríkisvaldið um staðsetningu hennar og vonaðist hann til að farsæl lausn fyndist fljótlega. Framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins sagði að um 8% af eignum sjóðsins hefðu verið bankainnistæður um síðustu áramót og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu væri nú verið að kanna hvort unnt væri að ná fram hagkvæmri langtímaávöxtun þess fjár með þátttöku í arðbærum framkvæmdum. Þá væri stór hluti eigna sjóðsins í í auðseljanlegum verðbréfum og auðvelt væri að breyta hluta þeirra í peninga, sem mætti nýta í t.d. fjármögnun arðbærra framkvæmda. "
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira