Innlent

Samnýttir bílar njóti forgangs

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er formaður umhverfis- og samgönguráðs.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er formaður umhverfis- og samgönguráðs. Mynd/GVA
Gerð verður tilraun til að stýra umferð á morgnanna á virkum dögum á Hlíðarfæti við Öskjuhlíð með því móti að leyfa aðeins umferð þeirra sem fara samferða í bíl, að fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Umhverfis- og samgönguráð borgarinnar samþykkti á fundi sínum í gær að fela samgöngustjóra borgarinnar að gera tilraun með þetta að leiðarljósi. „Við viljum með þessari samþykkt stuðla að vistvænni ferðamáta til og frá skóla og vinnu en tíðkast hefur,".segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður ráðsins í tilkynningunni.

Samkvæmt samþykktinni er gert ráð fyrir að strætisvagnar, leigubílar og samnýttir einkabílar njóti forgangs á Hlíðarfæti sem er nafn á nýrri götu sem tekin verður í gagnið um svipað leyti og Háskólinn í Reykjavík hefur starfsemi sína í Öskjuhlíð eða á vormisseri 2010. Þeir sem ferðast einir í bíl geta farið Flugvallarveg.

Hægt er að sjá yfirlitsmyndina af Hlíðarfæti hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×