SPRON varaði ítrekað við 10. júlí 2009 05:15
Bráðabirgðastjórn SPRON varaði viðskiptanefnd við 9. júní að ekki væri hægt að greiða laun starfsmanna SPRON þar sem lög tækju ekki til fyrirtækisins. Greiða átti út laun 1. júlí. Athugasemdin er til móttökustimpluð í viðskiptanefnd. Hlynur Jónsson, formaður slitastjórnarinnar, hafði svo samband við aðstoðarmann viðskiptaráðherra 22. júní og sagði að vegna slitameðferðar væri sú staða komin upp sem varað var við 9. júní. Hlynur hafði samband við lögfræðing hjá ráðuneytinu 25. júní og ítrekaði mikilvægi málsins. Haft var samband við slitastjórn 29. júní og sagt að lögum yrði ekki breytt. Daginn eftir, 30. júní, tilkynnti slitastjórnin hvernig væri fyrir þessu komið. Sagt var frá því í fjölmiðlum á miðvikudag að réttarfarsnefnd hefði sent frá sér álit þar sem hún taldi að slitastjórn SPRON væri heimilt að greiða út laun. Hins vegar náðist ekki í alla nefndarmenn við gerð álitsins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Slitastjórn hefur óskað eftir nánari skýringum réttarfarsnefndar. Ástæða þess að SPRON getur ekki gengið frá launum án lagabreytinga, að mati slitastjórnar, er að það skapar skaðabótaábyrgð gagnvart öðrum kröfuhöfum. Hlynur segir líklegt að erlendir kröfuhafar myndu kæra það. Þeir hafi þegar stefnt SPRON og vilja að yfirtaka SPRON verði dæmd ólögmæt. „Þeir eru því til alls líklegir og við gefum þeim ekki vopn að óþörfu," segir Hlynur. Ósvaldur Knudsen, einn talsmanna fyrrverandi starfsmanna SPRON, segir að hvort sem túlkun slitastjórnarinnar sé rétt eða röng, þá er líklegt að breyta þurfi lögunum. „Ég skil ekki af hverju menn standa í hártogunum endalaust. Viðskiptaráðherra og formaður viðskiptanefndar hafa gefið í skyn að ef ekkert verður gert af hálfu slitastjórnarinnar verði lögum breytt. Ég skil ekki af hverju menn setja þetta ekki bara á dagskrá þingsins og reyna að fá flýtimeðferð á þessu," segir Ósvaldur.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Sjá meira