Segja hótanir hafa stöðvað frumvarp 1. apríl 2009 06:30 Birgir Ármannsson
Þingmenn Sjálfstæðisflokks komu í gær í veg fyrir að frumvarp um stjórnarskrárbreytingar yrði afgreitt úr nefnd í gærkvöldi eins og til stóð. Þeir hótuðu að koma í veg fyrir að frumvarp sem ætlað var að stoppa í götin á gjaldeyrishöftunum yrði afgreitt úr þinginu fyrir morgun. Stjórnarfrumvarp um breytingar á tollalögum og lögum um gjaldeyrismál var lagt fram á Alþingi á sjötta tímanum í gær. Afbrigði þurfti til að fá málið á dagskrá þingsins strax, en afar mikilvægt var talið að afgreiða málið fyrir opnun markaða í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins neituðu þingmenn Sjálfstæðisflokks að veita afbrigði. Heimildarmaður orðar það svo að þeir hafi notað þetta mikilvæga mál sem skiptimynt til að tefja framgang frumvarps um stjórnarskrárbreytingar. Fáheyrt sé að hótað sé að stöðva svo mikilvæg mál með þessum hætti. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir þetta oftúlkun á atburðarásinni. Sjálfstæðisflokkurinn hafi vissulega þrýst á að samráð yrði haft við þingmenn flokksins um stjórnarskrárbreytingarnar. „Það greiddi fyrir úrslausn málsins [í gær] að það var fallist á að ræða við okkur og hætt við að keyra málið úr nefndinni [í gærkvöldi]," sagði Birgir. Þegar Fréttablaðið fór í prentun hafði önnur umræða um frumvarpið um breytingu á gjaldeyrislögunum ekki farið fram, en þingmenn sem rætt var við töldu að það yrði að lögum um kvöldið. Frumvarpið á að tryggja að markmið stjórnvalda um styrkingu gengis krónunnar náist. Samkvæmt því verða útflytjendur að skrá verð vöru sem flutt er út í evrum eða annarri erlendri mynt. Ekkert bendir til að samkomulag sé í farvatninu um breytingar á stjórnarskránni og skipan stjórnlagaþings. Sjálfstæðismenn geta ekki fellt sig við breytingartillögur flutningsmanna sem lagðar voru til um helgina. Fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í sérnefnd um stjórnarskrármál voru sendar tillögurnar í tölvupósti á laugardagsmorgun og boðið að gera við þær athugasemdir fyrir mánudagsmorgun enda hygðist formaður nefndarinnar, Valgerður Sverrisdóttir, þá taka málið úr nefndinni. Sjálfstæðismenn héldu sem kunnugt er landsfund um helgina. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á fundi með blaðamönnum í gær að málinu hefði þokað verulega áfram þó sameiginleg lending hefði ekki náðst. Reynt hafi verið að nálgast sjónarmið sjálfstæðismanna. Birgir segir breytingarnar koma afskaplega skammt til móts við sjónarmið flokksins. „Í sumum tilvikum er aðeins um fegrunaraðgerðir að ræða og í öðrum tilvikum vekja útfærslur upp fleiri spurningar eða er ýtt inn í framtíðina." Birgir segir því rangt hjá Jóhönnu að þokast hafi í samkomulagsátt, alls óvíst sé um framhald málsins.bj, bþs, kóp
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira