Hækka framfærslustyrki um tíu þúsund 16. desember 2009 06:00 Hanna Birna Kristjánsdóttir Bborgarstjóri kynnti í gær tillögur um auknar fjárveitingar til velferðarmála og sagði frá 40 milljóna króna átaki vegna atvinnuþróunar. Fréttablaðið/Anton „
Við verðum að ýta undir dugnaðinn og metnaðinn sem einkennir þjóðarsálina," sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri í gær við aðra umræðu um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks kynnti í gær ýmsar ráðstafanir undir yfirskriftinni „Forgangsraðað í þágu barna og velferðar." Í breytingartillögum við frumvarpið að fjárhagsáætluninni sé það gert án þess að hækka skatta eða gjöld á grunnþjónustu. Meðal annars á að hækka hámarksupphæð fjárhagsaðstoðar úr 115.567 krónum á mánuði í 125.506 eða um tæpar tíu þúsund krónur. „Á þennan hátt vill Reykjavíkurborg tryggja betur grunnöryggisnetið fyrir þá sem þurfa á fjárhagslegum stuðningi að halda," segir í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra. Þessi viðbót á að kosta 142 milljónir króna. „Við verðum að fara sömu leið og heimili og fyrirtæki landsins, forgangsraða í þágu þess sem mestu skiptir, hagræða og spara," sagði Hanna Birna í borgarstjórn í gær. Hún sagði að reyndust útgjöld vegna fjárhagsaðstoðar og húsaleigubóta, sem væru bundnir liðir, vera of lágt áætluð myndi borgarsjóður engu að síður borga það sem vantaði upp á. „Þannig á enginn að velkjast í vafa um að við munum standa við bakið á almenningi í borginni sem á rétt á þessum stuðningi," sagði borgarstjórinn. Hanna Birna segir að rekstur borgarsjóðs eigi að vera hallalaus á næsta ári. Þátt fyrir sparnað sé engin hagræðingarkrafa gerð á velferðarsvið og lægri hagræðingarkrafa á menntasvið, leikskólasvið og íþrótta- og tómstundasvið en önnur svið borgarinnar. Staðinn verði vörður um grunnþjónustu, störf og gjaldskrár. - gar
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira