Greiðsluverkfall yfirvofandi Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 24. júní 2009 10:06 Hagsmunasamtök heimilanna kjósa nú um greiðsluverkfall. „
Það kæmi mér á óvart ef almenningur myndi ekki taka sig saman og gera eitthvað í málunum," segir Þórður B. Sigurðsson, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Samtökin héldu fundi víðsvegar um landið í gærkvöld þar sem fundarmenn samþykktu samhljóða ályktun um málefni heimilanna. Að sögn Þórðar fóru fundirnir vel fram. Flestir mættu á fund samtakanna í Reykjavík, um 50 manns, en hann fór fram í Reykjavík. Færri mættu á fundi þeirra á landsbyggðinni. Í kjölfar fundanna fer fram rafræn kosning um það hvort stjórn samtakanna skuli beita sér fyrir hertari aðgerðum, eða greiðsluverkfalli. Niðurstaða kosningarinnar kemur í ljós innan tveggja sólarhringa. Verður þá skipuð fimm manna verkfallsstjórn sem myndi skipuleggja og framkvæma verkfallsaðgerðirnar, kjósi félagsmenn svo. Að sögn Þórðar geta allir sem vilja tekið þátt í greiðsluverkfalli á grundvelli persónulegrar ákvörðunar hvers og eins. Hann bendir þó á að hægt sé að styðja slíkar aðgerðir með ýmsum hætti öðrum en að takmarka afborganir eða leggja þær niður. Þórður treystir sér ekki til að spá fyrir um fjöldann sem væri viljugur til að taka þátt í aðgerðunum. Hann segir ljóst miðað við opinberar tölur að mjög margir séu í þrengingum. Þórður viðurkennir þó að aðgerðirnar séu ekki áhættulausar. „Það er auðvitað viss hætta á því að þær valdi meira tjóni en þeim er ætlað að koma í veg fyrir. Þess vegna skiptir miklu máli að staðið sé að þessu með ábyrgum hætti og ítrustu varúðar sé gætt. Það verður auðvitað í höndum verkfallsstjórnar," segir Þórður og bætir við að lögfræðingur komi til með að sitja í verkfallsstjórninni. „Við erum ekki að þessu til að valda tjóni, heldur til að koma í veg fyrir frekara tjón," segir Þórður að lokum.
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Sjá meira