Innlent

Gunnar tjáir sig ekki um óskir Ómars

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Gunnar Birgisson ætlar ekki að tjá sig kröfur Ómars Stefánssonar fyrr en eftir fund með fulltrúaráði Sjálfsstæðisflokksins í Kópavogi næsta mánudagskvöld.
Gunnar Birgisson ætlar ekki að tjá sig kröfur Ómars Stefánssonar fyrr en eftir fund með fulltrúaráði Sjálfsstæðisflokksins í Kópavogi næsta mánudagskvöld.
Gunnar Birgisson vildi ekki tjá sig um hvað Ómar Stefánsson hefur farið fram á að hann geri. „Ég tjái mig um ekkert um það. Ég mun ræða það á fundi með fulltrúaráði flokksins á mánudagskvöldið og tel ekki rétt að ég tjái mig um það fyrr en þá," sagði Gunnar í samtali við Vísi.

Aðspurður hvort það kæmi til greina að hann myndi víkja alfarið úr bæjarmálum vildi hann ekki heldur tjá sig. Því síður vildi hann svara því hvort að meirihlutinn gæti mögulega starfað án þess að hann stígi niður úr stóli bæjarstjóra sagði Gunnar samstarfið hefði verið gott undanfarin 19 ár og hann vonaðist til þess að svo yrði áfram.

Spurður hvort slíkt væri raunhæft með hann innanborðs svaraði hann: „Nú verðurðu að bíða til mánudagsins."

Fulltrúaráð Sjálfsstæðisflokksins mun funda um málið næsta mánudagskvöld. Fulltrúaráð Framsóknarflokksins fundaði hinsvegar í kvöld en að þeim fundi loknum vildi Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins ekki tjá sig um hvað hefði farið á milli hans og Gunnars.


Tengdar fréttir

Ómar Stefánsson: Ég verð ekki bæjarstjóri

„Ég gerði bara flokknum grein fyrir því hvað hefði farið milli okkar Gunnars og fékk fullan stuðning til þess að halda áfram að vinna að lausn á þessu máli,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Kópavogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×