Rithöfundar eru nýju útrásarvíkingarnir 4. janúar 2009 04:00 Rithöfundar eru ef til vill hinir nýju útrásavíkingar en hátt á annað hundrað útgáfusamninga voru gerðir á árinu sem var að líða.
Íslensk skáldverk voru í mikilli útrás á árinu sem var að líða. Bókaútgefendur gerðu vel á annað hundrað útgáfusamninga við erlendar útgáfur og því ættu aðdáendur íslenskrar bókmenntahefðar að geta nálgast íslensk skáldverk með fremur auðveldum hætti í útlöndum. Ólíkt því sem menn kynnu að halda er hér ekki um að ræða einsleitan hóp nágrannaþjóða heldur voru gerðir samningar við fjarlæg lönd á borð við Kóreu, Kína og Indland. Kristján Kristjánsson hjá Uppheimum gerði samning við þýska forlagið btb um útgáfu á tveimur bókum glæpasagnahöfundarins Ævars Arnar Jósepssonar. Annars vegar Sá yðar sem syndlaus er og hins vegar Land tækifæranna sem kom út fyrir þessi jól. Kristján segir þýska útgefendur vera sérlega áhugasama um íslenskar bækur um þessar mundir og vitað er af áhuga þeirra á öðrum rithöfundum forlagsins. Kristján taldi hins vegar ekki tímabært að opinbera hverjir þeir væru. Pétur Már Ólafsson hjá Veröld stóð í ströngu allt síðasta ár vegna útgáfumála Yrsu Sigurðardóttur á erlendum vettvangi. Nýjasta bók Yrsu, Auðnin, var seld til þýska forlagsins Fischer Verlag auk þess sem samið var um útgáfurétt til erlendra aðila á nokkrum af hennar eldri bókum. „Til gamans má geta að Þriðja táknið kemur út í kilju í Bretlandi nú í byrjun janúar,“ segir Pétur en Veröld gekk frá alls sjö útgáfusamningum á bókum Yrsu á árinu sem var að líða. Stærsta forlag landsins, Forlagið, stóð í stórræðum þetta árið. Gengið var frá 130 útgáfusamningum við erlend forlög á árinu 2008. Lang fyrirferðarmestur á þeim lista er Arnaldur Indriðason en alls voru gerðir 36 samningar um hvers kyns útgáfu á bókum hans. Þar má meðal annars nefna hljóðbækur á þýsku, stafrænt niðurhal og útgáfu á bókum rithöfundarins fyrir sjóndapra. Af öðrum stórum samningum má nefna að samið var fyrir hönd rithöfundanna Auðar Jónsdóttur og Guðrúnar Evu Mínervudóttur við þýska risann btb um útgáfu á bókum þeirra Vetrarsól og Skaparinn. Þar að auki má nefna að þýska forlagið Bloomsbury Kinderbuch Verlag tryggði sér útgáfuréttinn að barna-og unglingabókinni Garðurinn eftir Gerði Kristnýju og franska forlagið Métalié keypti útgáfuréttinn að bók Árna Þórarinssonar, Dauða trúðsins. Ævar Örn Jósepsson Volkswagen Golf Metan bíll Glæpasögur rithöfundur Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur Arnaldur Indriðason
Mest lesið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Fleiri fréttir Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Sjá meira