Tekist á um endurskoðaða fjárhagsáætlun 31. mars 2009 16:16 Frá borgarstjórn Reykjavíkur. MYND / Gunnar V. Andrésson
Borgarfulltrúar tókust á um endurskoðaða fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 á aukafundi borgarstjórnar í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði að áætlanir virðist ætli að standa. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar, gagnrýndi að minnihlutinn hafi ekki fengið aðgang að vinnugögnum við endurskoðun fjárhagsáætlunar. Endurskoðun á fjárhagsáætlun 2009 hófst í byrjun janúar og var markmiðið að hagræða um rúmlega 2,4 milljarða. Í nýlegri greinargerð fjármálaskrifstofu er gert ráð fyrir að skera 1.126 milljónir niður í launaútgjöldum og 1.243 milljónir í öðrum kostnaði. Á þriðja þúsund starfsmanna tók þátt í vinnunni undir forystu starfshóps embættismanna. Dagur sagði minnihlutinn standa við þau markmið sem borgarstjórn setti sér í aðgerðaráætlun í haust. Samkvæmt henni mun borgin standa vörð um grunnþjónstuna, atvinnustigið og störf borgarstarfsmanna og hækka ekki gjaldskrár. Hanna Birna sagði Dag uppteknari af aukaatriðum frekar en aðalatriðum og hvatti hann til að lesa endurskoðaða fjárhagsáætlun og aðgerðaráætlunina sem hann hafi tekið þátt í að samþykja í haust. Hanna Birna fullyrti að Dagur og aðrir borgarfulltrúar hafi fengið öll þau gögn sem hafi legið fyrir. Hún sagði jafnframt að meirihlutinn bæri pólitíska ábyrgð á endurskoðaðri fjárhagsáætlun en ekki embættismenn. Kreppan er látin bitna á börnunum í borginni, fullyrti Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri grænna. Fram komi í máli hennar að heil kennslustund á dag verði tekin af grunnskólabörnum í 2. til 4. bekk. Svandís sagði að verið væri að skerða þjónustu við börn þegar að kennslustundum væri breytt í eitthvað annað. Dagur sagði að Samfylkingin setti fyrirvara við þær gjaldskrárhækkanir sem væru í pípunum. Að auki sagði Dagur óskynsamlegt að skera niður í mannaflsfrekum framkvæmdum. Í andsvari Hönnu Birnu kom fram að í fyrirhuguðum aðhaldsgerðum muni engin störf tapast vegna hagræðingar í viðhaldi á húsnæði og öðrum eignum borgarinnar. Hún benti á að einungis væri um að ræða 6-10% af viðhaldsfé borgarinnar. Óskar Bergsson, formaður borgararáðs, sagði að gagnrýni minnihlutans væri léttvæg. Hann sagði að það væri ekki nein óvissa um framkvæmd framkvæmdaáætlunar borgarinnar og að ómaklegt væri að halda öðru fram.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira