Lífið

Lúnar tær sjónvarpsstjarna nuddaðar upp úr ilmolíum

Forsetinn Siggi stormur ásamt þeim Sævari, Elínu, Láru og Hauki kanna vistir fyrir þorrablótið.
Forsetinn Siggi stormur ásamt þeim Sævari, Elínu, Láru og Hauki kanna vistir fyrir þorrablótið. fréttablaðið/gva

„Við komum í Þórsmörk að kveldi bóndadags og fáum við karlarnir táslunudd sem er ómissandi þáttur í þessum ferðum. Konurnar nudda þá tær á okkur upp úr ilmolíum,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður.

Sigurður, eða Siggi stormur, er forseti NFS sem hlýtur að teljast einn sérstæðasti jeppaklúbburlandsins. Meðal félaga eru ýmsar þekktustu sjónvarpsstjörnur landsins enda byggir klúbburinn á starfsmönnum Stöðvar 2 – fyrrverandi og núverandi: Sigmundur Ernir Rúnarsson, Gissur Sigurðsson, Haukur Holm og Kristján Már Unnarsson eru meðal þeirra hörðustu í klúbbnum auk Láru Ómarsdóttur sem jafnframt er upplýsingafulltrúi jeppaklúbbsins. Hún harðneitar aðspurð að ætla sér að taka þátt í táslunuddinu sem Siggi boðar. En tekur jafnframt fram að Siggi sé auðvitað forseti klúbbsins og ekki gott við að eiga að setja sig upp á móti honum með þetta.

Undirbúningur vegna hefðbundinnar þorrablótsferðar NFS í Þórsmörk stendur sem hæst. „Þetta er pungaferð,“ segir forsetinn brattur. „Það verður mikið af súrmeti og pungum enda ekkert nema prótein í pungunum. Þetta er alvöru þorrablót og allur pakkinn: Hangikjöt, saltkjöt, hákarl, harðfiskur, svið… það eina sem menn voru ekki hrifnir af eru bringukollarnir. Menn segja að það sé ekkert nema fita. En mér hefur nú alltaf þótt vænt um bringukollana,“ segir Siggi stormur og vottar fyrir eftirsjá í röddinni.

Skipulögð dagskrá verður frá morgni til miðnættis á laugardag og fastir liðir. Sérstök athöfn er þegar hákarl er étinn og staup með. Síðan eru medalíur afhentar þeim sem best hafa staðið sig í mannraunum og mætingum, barnadagskrá á litla sviðinu og svo eru fullorðinsleikir? „Já, neinei, ekkert þannig bannað börnum heldur verður farið í þrautakóng.

Svo þegar hópurinn vill hugarró verður skáldið Sigmundur Ernir með upplestur. Lára stýrir fjöldasöng en þá eru mörg lög með Ómari Ragnarssyni sungin. Lára stýrir söngnum af mikilli ákefð og er gríðarlega öflug í því,“ segir forsetinn sem gerir ráð fyrir um fjörutíu manna hópi á fimmtán jeppum. „Stoppað er á leiðinni og ég verð með fróðleiksmola. Þá þorir enginn að opna munninn til að trufla. Svo skefur gleðigjafinn Gissur ekki af því og býður upp á fyndnar sögur héðan og þaðan úr sveitum. Maður kemur úthleginn úr þessum ferðum.“

jakob@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.