Mörg mál brýnni en herbergjaskipan á Alþingi 22. maí 2009 11:00 Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, undrast þá athygli sem herbergjaskipan á Alþingi hefur fengið að undanförnu. Hann telur mun brýnna að stjórnarflokkarnir ræði mál sem varði heimilin og fyrirtækin í landinu. Gunnar viðurkennir að herbergið er tilfinningalega tengt Framsóknarflokknum. Að undanförnu hefur talsverið fjallað um að framsóknarmenn vilji ekki flytja úr þingflokksherbergi sem flokkurinn hefur haft til umráða í Alþingishúsinu undanfarna áratugi. Á grundvelli kosningaúrslitanna ákvað skrifstofa Alþingis að þingflokkar Vinstri grænir og Framsóknarflokkurinn hefðu herbergjaskipti. Núverandi þingflokksherbergi VG rúmar einungis níu þingmenn en flokkurinn fékk 14 þingmenn kjörna í kosningunum. Þingmenn Framsóknarflokksins eru níu.Fóðra fjölmiðla með smámálum „Ég held að stjórnarflokkarnir ættu að einbeita sér að mikilvægari málum heldur en að fóðra fjölmiðla með smámálum eins og um þetta tiltekna þingflokksherbergi," segir Gunnar. Þingflokksformaðurinn vill að stjórnarflokkarnir tali minna um sátt og samlyndi og komi þess í stað fram með mál sem snerti almenning í landinu. Gunnar segir að þingmenn framsóknarflokksins telji að vel sé hægt að leysa herbergjaskipan þingflokka í þinghúsinu án þess að framsóknarmenn yfirgefi það herbergi sem flokkurinn hafi haft í yfir tugi ára. Hann viðurkennir að herbergið er tilfinningalega tengt Framsóknarflokknum. Vel hægt að leysa málið innanhús „Það er enginn flokkur hafinn yfir þingið en að okkar mati er hægt að leysa málið með öðrum hætti innanhús," segir Gunnar og bendir á að Vinstri grænir hafa sýnt málinu mikinn skilning og vilji ekki endilega þetta tiltekna herbergi. „Þeir þurfa eðlilega að fá aðstöðu og á því höfum við mikinn skilning." Vel tekið á móti nýjum þingmönnum Gunnar er einn af fjölmörgum nýliðum á þingi. Hann segir starfsfólk Alþingis hafa tekið afskaplega vel tekið á móti sér og öðrum nýjum þingmönnum. „Okkur mætir í rauninni einstakt viðhorf meðal starfsfólks og allir eru hjálplegir við okkur sem eru að koma ný inn."
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira