Innlent

Vill leggja niður aðstoðarmannakerfi þingmanna

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur að leggja eigi niður aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna. Hún hefur beint því til þingmanna að þeir ráði sér ekki aðstoðarmenn. Forsætisnefnd tekur ákvörðun um málið eftir helgi.

Alþingi samþykkti í mars 2008 lagafrumvarp Sturlu Böðvarssonar, þáverandi þingforseta, um aðstoðarmenn þingmanna og formenn stjórnarandstöðuflokka. Síðan þá hafa formenn stjórnmálaflokka í stjórnarandstöðu átt rétt á að ráða sér aðstoðarmann í fullt starf en þingmenn Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæma átt rétt á að hafa aðstoðarmann í þriðjungsstarfi. Ásta var andsnúin fyrirkomulaginu þegar það var samþykkt á sínum tíma.

Ásta segir að leggja eigi aðstoðarmannakerfið að minnsta kosti tímabundið niður. Kerfið þarfnist endurskoðunar og gæta verði aðhalds í ríkisútgjöldum. Málið var rætt á fyrsta fundi forsætisnefndar eftir að þing kom saman.

Kostnaður við kerfið er meira en 60 milljónir á ári. Laun aðstoðarmanna, sem eru í þriðjungs-starfi, eru 25% af þingfararkaupi en þau eru 520 þúsund krónur á mánuði. Samkvæmt því eru mánaðarlaun aðstoðarmanna 130 þúsund krónur.

„Ég hef óskað eftir því að þingmenn ráði sér ekki aðstoðarmenn vegna þess að kerfið verður væntanlega endurskoðað en það verður aftur tekið til umræðu í forsætisnefnd eftir helgi," segir Ásta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×