Einar Skúlason: Vinstri grænir vilja ekki í gömlu Moggahöllina 22. maí 2009 13:03 Einar Skúlason var áður framkvæmdastjóri Alþjóðahússins.
Skrifstofustjóri Framsóknarflokksins, Einar Skúlason, segir Vinstri græna einnig eiga í herbergjakrísu líkt og þeir sjálfir í grein sem hann ritar á Pressuna. Þar skrifar hann svarbréf vegna stóra herbergjamálsins en Framsókn hefur neitað að yfirgefa græna herbergið á Alþingi. Vinstri grænir eiga að fá það enda þeirra aðstaða orðin of lítil eftir velgengni síðustu kosninga. Einar gagnrýnir Árna Þór Sigurðsson, þingmann Vinstri grænna, harðlega í pistlinum. En í viðtali við Morgunblaðið sagði Árni að það væri skoplegt að Framsóknarmenn gagnrýndu meirihlutann fyrir að ræða mál sem engu máli skiptu, síðan rífast þeir sjálfir vegna þingflokksherbergis. Einar svarar þessu af fullum hálsi og heldur því fram að Vinstri grænir séu engu skárri. Þeir hafi í raun neitað að taka við vinnuaðstöðu í skrifstofuhúsi við Aðalstræti vegna hugmyndafræðilegrar afstöðu. En húsið tilheyrði eitt sinn Morgunblaðinu og er stundum kallað Moggahöllin í daglegu tali. Orðrétt skrifar Einar: „Það kemur líka úr hörðustu átt að reyna að setja málið í pólitískt samhengi þar sem Vinstri græn hafa valdið töluverðu fjaðrafoki í þinginu að undanförnu þar sem þau neituðu að flytja í nýja skrifstofuaðstöðu fyrir alþingismenn í húsi við Aðalstræti. Og hvers vegna vildu þau ekki flytja? Jú, viðkomandi hús í Aðalstræti er þekkt sem Moggahöllin og af hugmyndafræðilegum og sögulegum ástæðum þá gátu þingmenn Vg ekki hugsað sér að hafa skrifstofur í húsinu."
Tengdar fréttir Mörg mál brýnni en herbergjaskipan á Alþingi Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, undrast þá athygli sem herbergjaskipan á Alþingi hefur fengið að undanförnu. Hann telur mun brýnna að stjórnarflokkarnir ræði mál sem varði heimilin og fyrirtækin í landinu. Gunnar viðurkennir að herbergið er tilfinningalega tengt Framsóknarflokknum. 22. maí 2009 11:00 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira
Mörg mál brýnni en herbergjaskipan á Alþingi Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, undrast þá athygli sem herbergjaskipan á Alþingi hefur fengið að undanförnu. Hann telur mun brýnna að stjórnarflokkarnir ræði mál sem varði heimilin og fyrirtækin í landinu. Gunnar viðurkennir að herbergið er tilfinningalega tengt Framsóknarflokknum. 22. maí 2009 11:00