Átök milli mótmælenda og lögreglu 25. júní 2009 06:00 stokkhólmur Dagleg mótmæli hafa verið í höfuðborg Svíþjóðar síðan kosningarnar fóru fram. Í Íran hefur fréttamönnum og ljósmyndurum verið gert erfitt fyrir og þeim bannað að starfa á götum úti. nordicphotos/afp
Lögregla og sérsveitir börðu niður mótmæli í Teheran í Íran í gær. Hundruð mótmælenda höfðu komið saman þrátt fyrir bann og hótanir íranskra yfirvalda. Mótmælendur voru lamdir með kylfum og táragasi var úðað á þá, samkvæmt vitnum. Að sögn börðust sumir mótmælendur á móti lögreglu en aðrir flúðu. Fjölmargir mótmælendur hefðu verið illa særðir og jafnvel látnir vegna ofbeldisins. Öryggisverðir eru sagðir hafa lamið konur sérstaklega, en konur hafa verið áberandi í mótmælum síðustu daga. Þúsundir öryggisvarða og lögreglumanna voru á götum úti í allan gærdag til þess að reyna að koma í veg fyrir mannsöfnuð. Eiginkona stjórnarandstöðuleiðtogans Mir Hossein Mousavi, Zahra Rahnavard, sagði í gær að mótmælendur hefðu stjórnarskrárbundinn rétt til mótmæla og ríkisstjórnin ætti ekki að bregðast við þeim líkt og herlög hefðu verið sett. Hún kallaði eftir því að öllum þeim sem hefðu verið handteknir í mótmælunum yrði sleppt. Annar frambjóðandi til forseta, Mohsen Rezaie, dró í gær til baka kvartanir sínar um kosningasvindl. Hann sagði það gert með hag landsins fyrir brjósti. Sendiherra Írans í Bretlandi hefur verið kallaður heim tímabundið og verið er að skoða hvort hægt sé að minnka opinber tengsl á milli landanna. Íranska stjórnin hefur sakað Breta um að senda njósnara til landsins til að stuðla að mótmælunum. Fjórir leikmenn íranska landsliðsins í knattspyrnu voru í gær settir í ævilangt bann vegna þess að þeir höfðu græn úlnliðsbönd til stuðnings Mousavi í leik landsins við Suður-Kóreu í síðustu viku. Græni liturinn hefur mikið verið notaður í kosningabaráttu Mousavis og í mótmælum eftir kosningar. Þá voru vegabréf þeirra tekin af þeim. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Fleiri fréttir Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Sjá meira