Erlent

Leysti þúsundir minka úr haldi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Minkur.
Minkur.

Það varð uppi fótur og fit í minkabúi í Fousing á Vestur-Jótlandi snemma í morgun þegar óþekktur aðili braust þar inn og hleypti minkunum út. Á búinu voru 5.000 minkar og slapp einhver hluti þeirra út í náttúruna, eigendum búsins til sárrar gremju. Lögregla telur víst að atvikið tengist öðru svipuðu í Søndervig en þar var minkabú einnig opnað fyrir nokkrum dögum og sluppu 6.000 dýr þaðan út. Að öðru leyti hefur lögregla lítið til að byggja rannsókn sína á þar sem engin fótspor eru greinanleg á vettvangi fyrir óteljandi minkasporum. Eitt vitni sá þó mann forða sér á hlaupum og aka hratt á brott.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×